Læknablaðið - 01.05.2014, Page 42
302 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Sérhæft áverka námskeið
fyrir lækna
Sérhæft áverkanámskeið, (ATLS, advanced trauma life support),
fyrir lækna var haldið í fyrsta skiptið á Íslandi 9.-11. apríl. Alls
tóku 16 deildarlæknar og sérfræðingar frá bráðasviði og skurð-
lækningasviði Landspítala þátt í námskeiðinu sem var haldið
í ágætri aðstöðu á Landakoti. Læknarnir Elfar Úlfarsson og
Brynjólfur Mogensen unnu að því í nokkra mánuði að fá ATLS-
kennarateymi frá Stokkhólmi til Íslands. Mjög jákvæð viðbrögð
frá forstjóra Landspítala og framkvæmdastjórum bráðasviðs og
skurðlækningasviðs urðu til þess að námskeiðið varð að veru-
leika en milljóna kostnaður fylgir námskeiði eins og þessu. Það
var einnig mjög jákvætt að læknarnir Elfar Úlfarsson og Viðar
Magnússon kenndu á námskeiðinu en báðir hafa ATLS-kennara-
réttindi.
Markmið námskeiðsins er að læknar séu mun betur undirbún-
ir í að taka á móti mikið slösuðum því góð samhæfð sérhæfing
skiptir miklu máli því hver mínúta slasaðra með fjöláverka getur
skiptir sköpum. Góð móttaka, greining og meðferð fjöláverka-
sjúklinga auka mikið lífslíkur viðkomandi og minnka kostnað
samfélagsins. Læknarnir voru æfðir í að greina og takast á við
hin ólíkustu vandamál á skipulagðan og markvissan hátt. Nám-
skeiðinu lauk með stöðluðu ATLS-prófi sem reynir á þolrifin en
skemmst er frá því að segja að árangurinn var mun betri en hjá
þeim sem við berum okkur gjarnan við. Læknarnir voru mjög
ánægðir með námskeiðið og vonumst við til að sérhæft áverk-
anámskeið verði að árlegum viðburði á Íslandi.
Brynjólfur Mogensen
Ánægðir nemendur og kennarar á ATLS-námskeiði. Ljósmynd: Rúdolf Adolfsson.
Elfar Úlfarsson einbeittur að kenna á verklegri stöð. Mynd: Védís.