Læknablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 59
LÆKNAblaðið 2014/100 699
Hér er 1 möguleiki á
að gleyma verknum
Hér eru 56 áminningar
um verkinn
1. www.serlyfjaskra.is
Margir sjúklingar með langvinna verki taka allt að 56 töflur á viku af stuttverkandi ópíóíðum og
eru því reglulega minntir á að þeir eru með verki. Norspan® forðaplástur veitir jafna og stöðuga
verkjastillingu í heila viku sem auðveldar sjúklingum að lifa með verkjunum og jafnvel gleyma
að þeir eru til staðar.
Ábending: Meðferð við frekar miklum verkjum sem ekki eru vegna illkynja sjúkdóma þegar þörf
er á ópíóíða til að ná fram fullnægjandi verkjastillingu. Norspan® hentar ekki til meðferðar á
bráðaverkjum1
LD1141012
Meiri tími er það sem alla læknar vantar.
Tími til að leita, til að lesa, til að grúska,
því að læknir sem getur lesið í kringum
tilfellin sín, rætt þau við kollega og haldið
tengslum við akademísku uppeldisstöðv-
arnar er ánægður og öruggur í starfi.
Félagsmiðlar eru sprottnir úr Web 2.0
- Internetinu sem fólkið skapaði. Félags-
miðlar eru engin tæknibylting einir og
sér heldur rökrétt þróun netsins og hafa
ásamt snjallsímanum breytt hversdagslegu
lífi okkar meira en við viljum viðurkenna,
jafnt heima sem á vinnustaðnum. Börnin
skáka afa og ömmu í tölvukunnáttu heima
og læknanemar reka sérfræðinginn á gat
á stofuganginum. Þekkingin er alls staðar
í offramboði en unga kynslóðin kann að
sía út það sem skiptir máli og leiða annað
hjá sér.
Sérfræðingurinn sækir ráðstefnur einu
sinni á ári og nær í besta falli að sofna
yfir annarri málsgrein í þykkum doðranti
úr bókahillunni eða heimsendu BMJ.
Símenntunarkrafan verður þvingandi.
Unglæknirinn hlustar á bestu ACEP-fyrir-
lesarana í snjallsímanum sínum, lærir
meinlífeðlisfræði lungna og EKG-túlkun
frá virtum sérfræðingum erlendis á You-
tube og sækir svo svar við spurningum
sínum á spjallrás unglækna á Google+ eða
Twitter. Með smá heppni gat læknaneminn
áður fyrr heyrt Hamman's sign einu sinni
á námsárum sínum en í dag má lesa
um slík tilfelli með hljóðdæmi og ítar-
legum útskýringum á bloggsíðum lækna.
Unglæknirinn er í sambandi við fjöldann
allan af kollegum erlendis sem hann hefur
aldrei hitt augliti til auglitis en ræðir engu
að síður við um tilfelli sín og lærdóma
ófeimið og þykir fullkomlega eðlilegt.
Sjúklingar eru upplýstir í dag og virkir
þátttakendur í ráðlagðri meðferð læknis.
Þeir þekkja sjúkdóm sinn og því mikilvægi
meðferðarheldni og þess að huga að lífs-
stíl og mataræði. Þeir vita hvaða einkenni
eru óeðlileg og hafa samband við lækni
sinn tímanlega. Upplýstir sjúklingar eru
ánægðari þar sem þeir upplifa sig ekki úr-
ræðalausa. Upplýstir sjúklingar „gúggla“
ekki heldur kunna að sía út áreiðanlegar
upplýsingar, meðal annars gegnum upp-
lýsingaveitur læknis síns og jafnvel um-
ræðuhópa með öðrum sjúklingum, með
eða án læknisins.
Sumir hafa gengið svo langt að segja að
gamla kennslubókin sé úr sögunni, hvort
sem það er rétt eða ekki endurspeglar sú
umræða hversu mikilvæg bylting er hér
á ferðinni. Læknar geta í dag nýtt annars
dauðar stundir til sækja sér lifandi sí-
menntun og haft gaman af því í stað þess
að láta mata sig á kostnaðarsömum ráð-
stefnum eða reyna í örvæntingu að finna
sér tíma til að setjast niður og lesa.
FOAM (Free Online Accessible
Meducation) er hugtak sem oft heyrist í
tengslum við nýjan heim af fræðslu fyrir
lækna og fer nú eins og eldur í sinu meðal
ungra lækna. FOAM-hugtakið varð til
meðal bráðalækna á félagsmiðlum um
allan heim en á við um allar sérgreinar og
auðveldar læknum að stíga fyrstu skrefin.
Félagsmiðlar eru lestarteinarnir, FOAM er
lestin. Ég vil hvetja alla kollega mína til að
kynna sér þetta hugtak.
Hvar á ég að byrja?
Engin leið er að kenna læknum á þessa
nýju heima hér á einni blaðsíðu í Lækna-
blaðinu enda er þessi pistill aðeins ætlaður
til kynningar á hugtakinu. FOAM-heimar
eru þess eðlis að ferðalagið hefst strax og
læknir stígur um borð í lestina. Læknirinn
byrjar strax að kynnast nýjum kollegum,
síðum og spjallrásum og það er engin
ein leið til að hefja þetta ferðalag. Það
eina sem þarf er forvitni (og smá tími við
tölvuna!). Eins og í öllum spennandi ævin-
týrum er ferðalagið sjálft markmiðið, ekki
áfangastaðurinn.
Facebook rás íslenskra læknar var
stofnuð 2012, þar inn hafa 1200 læknar um
víðan völl skráð sig. Margir eru sammála
því að þar sé mikilvægt sameiningartól
fyrir lækna og aldrei áður hafi náðst
saman svona stór hópur í sameiginlegan
umræðuvettvang. Auk þess hafa farið
fram margar athyglisverðar umræður
um tilfelli, íslenska heilbrigðiskerfið og
akademískan þankaganga, til dæmis
nýleg umræða þar sem vakin var athygli
á hugsanlegum brestum í vísindalegum
rökum fyrir notkun tPA við heilablóðfalli.
Í hópinn sárvantar fleiri eldri kollega til að
miðla af reynslu sinni.
Twitter læknar eru fáir en þeim fer
fjölgandi og flestir að fikra sig áfram. Með
aukinni þátttöku fer að verða hægt að
finna betur not fyrir þennan skemmtilega
miðil hjá íslenskum læknum.
Viðvera lækna í félagsmiðlaheimi
sjúklinga er nánast engin á Íslandi og full
ástæða til að vekja lækna til umhugsunar
um það. Það er mat undirritaðs að slík
nærvera læknis myndi bæta meðferðar-
heldni og ánægju sjúklinga, fækka óþarfa
komum og nýta betur tímann hjá lækni.
Allt þetta og fleira til verður rætt í
framtíðarpistlum í Læknablaðinu svo og á
næstu Læknadögum, meðal annars með
vinnubúðum.
Tenglar og ítarefni á http://goo.gl/OH6wck
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Davíð b. Þórisson
sérfræðingur í
bráðalækningum
bráðamóttöku Landspítala,
Fossvogi
david.thorisson@gmail.com
Íslenskir læknar og félagsmiðlar
If you want to know how we practiced medicine 5 years ago, read a textbook.
If you want to know how we practiced medicine 2 years ago, read a journal.
If you want to know how we practice medicine now, go to a conference.
If you want to know how we will practice medicine in the future, listen in the hallways and use
FOAM.
- dr. Joe Lex