Læknablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 44
684 LÆKNAblaðið 2014/100
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Það er meira en segja að það að útbúa
algerlega smithelda meðferðardeild
þegar upp kemur hætta á smiti
vegna alvarlegs sjúkdóms. Bryndís
Sigurðardóttir smitsjúkdómalæknir
á Landspítala er í ebóluteyminu
svokallaða sem fengið hefur þjálfun í
meðhöndlun einstaklinga sem sýktir eru
af ebóluveirunni ef til þess skyldi koma.
„Það er rétt að taka fram strax í upphafi
að líkurnar á því að hingað komi
einstaklingur sýktur af ebóluveirunni
eru í rauninni afskaplega litlar. Til þess
að svo geti orðið þarf viðkomandi að hafa
verið í einu af þeim þremur ríkjum Vestur-
Afríku sem glíma við sjúkdóminn, á
undangengnum þremur vikum. Hann þarf
einnig að hafa komist í beina snertingu við
sýktan einstakling og sýna þau einkenni
sem fylgja sjúkdómnum,“ segir Bryndís.
„Það breytir því þó ekki að við verðum
að vera við öllu búin og vita nákvæmlega
hvernig við tökum á því ef slíkt tilfelli
kemur til okkar kasta. Og það er heilmikið
mál.“
Líklegast að einhver veikist í flugvél
Viðbragðsáætlunin tekur til um 200 starfs-
manna Landspítalans og beinist að því að
hægt sé að breyta einni lyflækningadeild
spítalans í einangrunardeild á innan
við 6 klukkustundum og meðhöndla
sjúklinginn í framhaldinu þannig
að engum, hvorki starfsmönnum né
almenningi, stafi nokkur hætta af.
„Í undirbúningnum er reynt að gera
ráð fyrir öllum hugsanlegum aðstæðum
sem gætu komið upp svo við vitum
nákvæmlega hvernig á að bregðast við.
Þetta kallar á mikinn undirbúning og
æfingar sem allir þurfa að taka þátt í
og verkefnisstjórinn Hildur Helgadóttir
hjúkrunarfræðingur, hefur unnið
gríðarlega gott starf við allt skipulag
viðbragðsteymisins, ásamt öllum þeim
sem hafa komið að verkefninu,“ segir
Bryndís.
Hún segir langlíklegasta hugsanlega
tilfellið geta orðið ef flugvél sem væri á
Mikill viðbúnaður en óþarfi
að óttast faraldur
Segir Bryndís Sigurðardóttir um ebólu
Ebóluteymið þarf að æfa sig að klæða sig í og úr hlífðarfatnaði svo engin hætta sé á sýkingu eftir snertingu við sjúkling.