Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 53
LÆKNAblaðið 2014/100 693 krabbameins og það gekk afskaplega vel. Brautryðjendastarf okkar á því sviði skipti sköpum fyrir þetta rannsóknasvið. Við röktum ættir einstaklinga með hjálp Erfðafræðinefndar og Krabbameinsskrár og áttum verulegan þátt í því að einangra krabbameinsgenin BRCA-1 og BRCA-2. Ég keyrði um landið þvert og endilangt og safnaði blóði úr fólki sem fengið hafði meinið og eins úr ættingjum þess. Þessi ferðalög áttu vel við mig, mann sem hafði áhuga á fólki, ættfræði og landkönnun. Ég vann að þessum rannsóknum með úrvalsfólki, Rósu Barkardóttur, Vilmundi Guðnasyni, Aðalbjörgu Jónsdóttur, Aðal- geiri Arasyni og Óskari Þór Jóhannsyni. Ýmsa fleiri nefni ég í bókinni sem komu að þessum rannsóknum. Nokkru síðar hóf Krabbameinsfélagið líka rannsóknir og samanlögð vinna þessara tveggja íslensku rannsóknarstofa varð til mikils ávinnings fyrir læknavísindin. Tölvutækninni fleygði fram á þessum árum. Erlendis var nú þróuð sjálfvirkni og varð 100 sinnum hraðvirkari en þegar allt var gert „í höndunum”. Eða þúsundfalt hraðari. Það varð líka mögulegt að lesa úr flóknum tölfræðigögnum. Tíundi ára- tugurinn var tímabil gríðarlegra breytinga í vísindarannsóknum. Upp spretta nýjar greinar á sviði lífvísinda og erfðafræði sem tölvutæknin gerði mögulegt að stunda. Við þessar nýju aðstæður komu miklir peningar inn í greinina. Þá var þetta orðið allt annað mál. Í dag, á árinu 2014, átta menn sig varla á því að þegar ég tók land í London 1972 er það aðeins fáeinum árum eftir að grunnbygging á DNA sameind var út- skýrð. Enginn hinna ungu vísindamanna nú á 21. öld getur gert sér grein fyrir hve stutt menn voru komnir í erfðafræðinni um miðja 20. öld.“ Skáld og fararstjóri Skáldskapur og listsköpun hefur átt stóran þátt í lífsverki Valgarðs og eftir hann liggja leikrit, ljóðabækur og teikningar. Er hann ekki síður þekktur sem skáld en vísinda- maður. „Ég hef aldrei getað án skrifa verið. Einu sinni var mér boðin stjórnunarstaða þar sem ég sá fram á að ég gæti ekki sinnt skáldskapnum samhliða. Ég afþakkaði. Ljóðagerð, teikningar, leikritaskrif hafa átt hug minn allan á stundum.“ Margir þekkja Valgarð einnig sem afburða fararstjóra í gönguferðum um fjalllendi beggja vegna Eyjafjarðar. „Ég fór upphaflega í gönguferðir með ættingjum og læknastúdentum. Þetta vatt fljótt upp á sig. Ég tók að mér fasta fararstjórn í gönguferðum um skagann, ýmist fyrir Ferðafélag Íslands eða Grenvíkinga. Sinnti því svo með ánægju hvert sumar í 30 ár, einnig um Héðinsfjörð og Hvanndali. Bar titil varaforseta Ferðafélags Íslands í 9 ár. Það eru forréttindi að fá að sýna fólki landið okkar.“ Í lokakafla bókar sinnar sem Valgarður nefnir Hvernig menn umgengust helga dóma fjallar hann um ástand hnattarins okkar. Þar dregur saman þekkingu sína og til- finningu, raunvísindamaðurinn og skáldið Valgarður Egilsson. „Við erum erfðafræðilega eins og stein- aldarmenn. Við steinaldarmenn efnuðum í veislu. Hún hefir staðið í 300 ár og nú eru veisluföng á þrotum,“ segir hann. Ekki verður gerð tilraun til að sjóða inntak lokakaflans niður í nokkrar línur en sláum botn í þetta samtal með eftir- farandi tilvitnun: Það er smánarefni að stjórnmálamenn skuli ekki hysja upp um sig brækurnar og reyna að skilja hættur mannkyns, í hverju þær liggja. Fínar smíðar eru oft aðdáunarverð menningar- verk. Steinaldarmenn sumir náðu langt í smíði ýmiss konar, meðal annars vopna. Það er það sem víkingar á Norðurlöndum gerðu; smíðuðu fín skip og skæð vopn – og réðust svo á aðra. Hámenning 20. aldar fólst í því sama; flinkir menn smíðuðu sér enn betri tæki, flinkir að smíða sér vopn. Og því trúðu þeir að þetta væri hámenning. En þetta voru þá aðallega tæknibrögð. Enda höfðu menn gleymt því að í hámenningu þarf að finnast eitthvað af alúð og ást, ef standa á undir því nafni. Annars er þetta eitthvað allt annað. Tækniöld var stutt á veg komin í bernsku Valgarðs. U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.