Læknablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 48
688 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Verkföll Læknafélags Íslands og Skurð-
læknafélags Íslands hafa nú staðið yfir
í rúman mánuð. Ekkert hefur þokast í
samkomulagsátt í samningaviðræðum
félaganna við samninganefnd ríkisins og
allt stefnir í harðari verkfallsaðgerðir á
næstu vikum. Forystumenn læknafélag-
anna segja hrinu uppsagna yfirvofandi
ef ekki náist samningar á næstunni.
„Forsætisráðherra gaf í skyn á fundi
með Framsóknarmönnum á Höfn í Horna-
firði um helgina (22.-23. nóv.) að veita ætti
meira fé til heilbrigðismálanna. Við eigum
eftir að sjá hvernig það er hugsað og ekki
er samninganefnd ríkisins komin með
aukið umboð til samninga við okkur,“
segir Sigurveig Pétursdóttir formaður
samninganefndar Læknafélags Íslands.
„Ef ekki semst á næstu vikum, fyrir
áramót, sé ég fyrir mér að læknar segi upp
störfum í auknum mæli. Þetta verða ekki
hópuppsagnir heldur tekur hver þessa
ákvörðun fyrir sig og það sem er alvarlegt
er að þessir einstaklingar taka ákvörð-
unina að vel ígrunduðu máli og munu
ekki snúa aftur jafnvel þó samið verði við
lækna síðar. Þetta getur haft alvarlegar
afleiðingar því starfsemi í ákveðnum
greinum byggir á örfáum einstaklingum.
Ef þeir hverfa á brott er ekkert annað í
stöðunni en að leggja niður viðkomandi
starfsemi.“
Þorbjörn Jónsson formaður Læknafé-
lags Íslands tekur í sama streng og segir
stöðuna óbreytta frá upphafi verkfalls.
„Það er ekkert á borðinu þó ýmislegt
jákvætt hafi verið sagt af ráðamönnum.
Stjórn félagsins hefur samþykkt að halda
áfram verkfölllum og auka umfang þeirra
með því að hver lota standi í fjóra daga og
þær verði samfelldar en ekki með hléum á
milli eins verið hefur hingað til.“
Helgi Kjartan Sigurðsson formaður
Skurðlæknafélags Íslands segir stöðuna
óbreytta og enginn samningafundur boð-
aður með samninganefnd ríkisins þegar
þetta er skrifað.
„Það er ekkert að gerast hjá okkur og
við höfum verið að bíða eftir tilboði sem
samninganefnd ríkisins lofaði okkur
þann 4. nóvember. Það bólar ekkert á
því ennþá. Við áttum fund 22. nóvember
og honum lauk með því að enginn nýr
samningafundur var boðaður. Við bíðum
því núna eftir samninganefnd ríkisins hafi
samband þegar hún hefur eitthvað fram
að færa. Annars er tilgangslaust að ræða
saman. Hugsanlega verður eitthvað útspil
frá ríkisstjórninni sem gæti liðkað fyrir
samningum. Það er eina glætan í stöðunni
núna,“ sagði Helgi Kjartan.
Aðspurður um yfirvofandi uppsagnir
sagðist Helgi Kjartan vonast til þess í
Aukin harka að færast í aðgerðir
Læknafélögin boða auknar verkfallsaðgerðir
Þorbjörn Jónsson formaður LÍ,
Sólveig Jóhannsdóttir fram-
kvæmdastjóri LÍ, Ómar Sigurvin
Gunnarsson samninganefndar-
maður og Sigurveig Pétursdóttir
formaður samninganefndar LÍ
fara yfir málin. Þau eru nokkuð
brúnaþung enda er staðan grafal-
varleg.