Læknablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 52
692 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
dóttur, Arnhildi sem nú er organisti við
Lágafellskirkju í Mosfellssveit. Síðar hitti
ég Katrínu Fjeldsted, við giftum okkur 6
mánuðum síðar.
Eftir námið í læknisfræðinni hélt Val-
garður til London árið 1972 ásamt eigin-
konunni Katrínu og dóttur þeirra, Jórunni
Viðar, og þar bjuggu þau næstu 7 árin þar
til þau fluttu heim að nýju árið 1979. „Ég
stundaði þarna rannsóknir á orkubúskap
frumunnar, hafði mestan áhuga á að kom-
ast að því hvort brenglaður orkubúskapur
frumna gæti valdið krabbameini. Gallinn
var sá að ég var einn um þennan áhuga
og fékk því hvergi neina styrki og lítinn
faglegan eða móralskan stuðning. Upp-
hafsmaður að þessum kenningum var
þýskur gyðingur, Otto Warburg, á þriðja
áratug aldarinnar, en kenningum hans
hafði verið sópað út af borðinu 30 árum
áður en ég kom til London 1972. Það liðu
enn 25 ár, þar til um þúsaldarmótin 2000,
að áhugi vísindasamfélagsins kviknaði
aftur á orkubúskap frumnanna og þá var
aftur litið til kenninga Ottos Warburg. Þá
var ég farinn yfir í rannsóknir á brjósta-
krabbameini, erfðaþætti þess og ekki auð-
hlaupið fyrir mig að taka á ný til við mitt
fyrrverandi sérsvið, orkubúskapinn. Það
var of seint, nema maður henti öllu frá
sér, skrifum og öllu. Nú hamast menn um
allan heim við rannsóknir á orkubúskap/
metabólisma krabbameinsfrumna. Og
mikilvægar upplýsingar flæða inn í vís-
indatímaritin.
En í London vann ég að þessum rann-
sóknum launalaus í 7 ár og Katrín, sem þá
var í sérnámi í heimilislækningum, vann
fyrir okkur sem aðstoðarlæknir á lágum
launum. Vinnuvikan hennar gat verið allt
að 120 klukkustundir. Það var ómann-
eskjulegt. Í London urðum við fyrir því að
5 ára drengur, sonur okkar, varð fyrir bíl
og lést. Það er erfiðasta reynsla sem for-
eldrar verða fyrir.“
Erfðafræði brjóstakrabbameins
Eftir heimkomu til Íslands var Val-
garður stundakennari í frumulíffræði
við læknadeild HÍ og kom sér upp rann-
sóknaraðstöðu við Rannsóknastofu í
meinafræði. „Aðstaðan var reyndar engin
í fyrstu en ég kom upp rannsóknarstofu í
húsakynnum gamla Hjúkrunarskólans, nú
Eirbergi, og var þar í nokkur ár með góð-
um árangri. Ég fékk í lið með mér nokkra
af bestu stúdentunum í læknadeildinni,
til dæmis Vilmund Guðnason og Sigurð
Ingvarsson, sem hafa um árabil verið
meðal okkar fremstu vísindamanna, Vil-
mundur forstöðumaður hjá Hjartavernd
og Sigurður á Tilraunastöðinni á Keldum.
Um svipað leyti var auglýst staða
prófessors í vefjafræði við læknadeild og
ég var eini umsækjandinn. Ég var með
doktorsgráðu í frumulíffræði og sérfræði-
viðurkenningu í frumumeinafræði og
hafði verulega reynslu af vefjafræði. Þrem-
ur vikum eftir að umsóknarfrestur var
runninn út var tekið við annarri umsókn
og þremur vikum ennþá síðar var tekið
við þeirri þriðju. Dómnefnd valdi þriðja
umsækjandann. Háskóli Íslands veitti mér
síðar viðurkenningu, nafnbótina klínískur
prófessor. Fylgir þeirri nafnbót heimild til
að panta miða á árshátíð háskólakennara.
Undir ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen
fór verðbólga í 120% og þurfti að grípa
til niðurskurðar á Landspítalanum. Staða
mín var þá skorin niður til hálfs. Líklega
vegna þess að enginn skildi nokkurn
skapaðan hlut í því hvað ég var að fást
við og þótti þá ekki tiltökumál að skera
niður.“
Rannsóknir Valgarðs tóku við þetta
nýja stefnu, og segist hann hafi orðið
að snúa sér að rannsóknum sem skír-
skotuðu meira til ráðandi manna. „Við
snerum okkur að erfðafræði brjósta-
Frá stjórn Öldungadeildar
Vel hefur gengið að innheimta árgjöld, en þó eru furðu margir sem hafa ekki komist í banka
enn. Stjórnin hefur því ákveðið til einföldunar fyrir félagana að í stað millifærslu í netbanka muni
hún innheimta árgjöldin fyrir árið 2014 með valgreiðslum í netbanka. Vonum við að félagsmenn
bregðist vel við því.
Fyrirlesari í janúar verður oddur Sigurðsson, jarðfræðingur, sem mun fræða okkur um gos eða
goslok.
Í febrúar mun Stefán jón Hafstein segja frá dvöl sinni í Afríku og kynna bók sína,
Afríka - ást við aðra sýn.
Í mars mun svo jón Kristjánsson fiskifræðingur ræða um fiskigengd og fleira.
Fyrirhuguð Færeyjaferð um miðjan maí er í fullum undirbúningi og verður tilkynnt á næsta fundi
og í fréttapósti hvenær bókanir hefjast, um kostnað og fleira.
Kápan á bók Valgarðs, Steinaldarveislunni, sem var að
koma út hjá Saga forlaginu.