Læknablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 49
lengstu lög að til þeirra kæmi ekki. „ Við
vonum að deilan leysist áður en til þess
kemur.“
Verkfallsverðir Læknafélaganna hafa
haft bækistöð í höfuðstöðvum Lækna-
félagsins að Hlíðasmára 8 og safnast þar
saman að morgni verkfallsdaganna áður en
haldið er í eftirlitsferðir á sjúkrahúsin. Að
sögn verkfallsvarða hefur ekkert verið um
verkfallsbrot en vegna skipulags verkfalls-
ins þar sem einstök svið, en ekki öll, eru í
verkfalli á hverjum tíma, hafa komið upp
álitamál sem leysa hefur þurft úr.
Stjórnir félaganna hafa lagt áherslu á að
verkfallsverðir forðist átök eða deilur inn á
sjúkrahúsunum og hefur reynst auðvelt að
fylgja þeim fyrirmælum. Það var einróma
álit verkfallsvarða að samstaða annars
heilbrigðisstarfsfólks með málstað þeirra
væri mikil og allir legðu sig fram um að
gæta þess að verkfallið væri haldið og ekki
gengið í annarra störf. Niðurstaðan er því
sú að verkfallið kemur verst niður á þeim
sem þurfa á þjónustunni að halda og hefur
fjölda aðgerða verið frestað vegna verk-
fallsins en flestir hafa tekið því vel og af
skilningi.
Blaðamaður Læknablaðsins varð vitni
að því þegar eldri kona kom í sitt reglu-
bundna eftirlit á Hjartagátt Landspítala á
verkfallsdegi og var vísað frá. Hún tók því
vel þó hún hefði tekið leigubíl að heiman
og yrði nú að taka annan bíl heim án þess
að fá lausn sinna mála. Starfsfólk afgreiðsl-
unnar sagði þetta ekki einstakt tilfelli
enda ekki allir með dagsetningar verkfalla
á einstökum sviðum spítalans á hreinu.
„Við vonum að deilan leysist sem fyrst
svo ekki komi til áframhaldandi og út-
breiddari verkfalla,“ segir Þorbjörn Jóns-
son formaður LÍ.
Hjá ríkissáttasemjara í Borgartúni. Á myndinni eru frá vinstri samninganefnd LÍ: Oddur Ingimarsson, Björn Gunn-
laugsson og Sigurveig Pétursdóttir, og Magnús Pétursson ríkissáttasemjari, Gunnar Björnsson og Halldóra Friðjóns-
dóttir af hálfu ríkisins.
Verkfallsverðir Skurð-
læknafélagsins á vett-
vangi. Frá vinstri: Halla
Fróðadóttir lýtalæknir,
Sigríður Sveinsdóttir
háls-, nef- og eyrnalækn-
ir og Rafn Hilmarsson
þvagfæraskurðlæknir.
LÆKNAblaðið 2014/100 689
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R