Læknablaðið - 01.05.2015, Síða 36
268 LÆKNAblaðið 2015/101
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
gert útaf við alþýðuvísindi og alþýðu-
menningu þjóðarinnar þar sem enginn
má hafa skoðun á sögunni eða bókmennt-
unum nema hann hafi lokið doktorsprófi
í greininni. Alþýðumaður eins og ég má
ekki hafa skoðun á Íslendingasögunum og
alþýðumaður eins og Megas er ekki mark-
tækur þegar kemur að Passíusálmunum.
Þetta er afskaplega dapurleg þróun.“
Hallgrímur Pétursson er tvímælalaust
það skáld sem hefur haft mest áhrif á
skáldskap Megasar að sögn Óttars. „Mörg
kvæða Megasar eru bókstaflega ort í anda
Hallgríms og stundum finnst manni að
þeir renni saman í einn mann. Ég velti því
talsvert fyrir mér hversu andlega skyldir
þeir eru og hversu margt er líkt með þeim
þegar grannt er skoðað. Samfélagið for-
dæmdi Hallgrím og ekki hefur Megas
alveg verið laus við fordæmingu og umtal
af ýmsu tagi.“
Aldrei skeytt um afleiðingar eða áhrif
Neysla Megasar á lyfjum og áfengi hefur
verið lýðum ljós um áratugaskeið og þá
varð ekki síður fréttnæmt er hann sneri
við blaðinu og snerti ekki vímuefni um
12 ára skeið frá 1979-1991. Þegar því lauk
gaf hann AA-samtökunum og edrúpáfum
langt nef og gaf meira segja út plötu er bar
þann ögrandi titil Til hamingju með fallið.
Margir áttu erfitt með að kyngja slíkri
kaldhæðni.
„Megas hefur í þessum skilningi verið
sinn versti óvinur. Hann hefur í rauninni
aldrei skeytt neitt um afleiðingar eða áhrif
gjörða sinna eða listsköpunar. Oft og tíð-
um hefur fólk átt erfitt með greina þarna
á milli og lesið persónu hans að ósekju
úr skáldskap hans. Hann hefur því verið
ásakaður um að taka málstað vændiskaup-
enda, nauðgara og barnaníðinga þegar
hann hefur ort kvæði í orðastað slíkra ein-
staklinga án þess að taka afstöðu sjálfur til
athæfis þeirra. Þetta hafa auðvitað margir
rithöfundar gert án þess að nokkrum detti
í hug að þeir séu að lýsa eigin skoðunum
eða reynslu en Megas hefur mátt þola
slíkar ásakanir.“
Stormasamt líf Megasar og á köflum
óreglusamt heyrir sögunni til nú þegar
skáldið stendur á sjötugu og þjóðin hefur
endanlega tekið það í sátt. „Síðasta þjóð-
skáldið“ sagði einn gagnrýnandi í lofsam-
legum dómi um heildarljóðasafn Megasar
er kom út hjá Forlaginu 2012.
Svona farast Óttari orð um sess Meg-
asar í dag:.
Lífið gengur sinn vanagang. Plötur hans og
Senuþjófanna ganga vel og seljast ágætlega.
Engir textar hafa vakið einhverja stórhneyksl-
un eða umtal. Margir þeirra eru reyndar tor-
skildir en það breytir engu um söluna. Hann
fær heiðurslaun listamanna, býr í búnkernum
og er duglegur að skrifa. Friður ríkir um
skáldið og fáir hnýta í það fúkyrðum lengur.
Megas er kominn upp á nýjan stall þar sem
hann nýtur mikillar virðingar og þjóðin
búin að fyrirgefa honum gamlar ávirðingar.
Enginn veltir því lengur fyrir sér hvort hann
drekki bjór á börunum eða ekki. Ungir tón-
listarmenn sækjast eftir því að fá að spila
með Megasi og kynnast honum.
Kvæðabókin var ein sigurganga eins og
síðustu Passíusálmatónleikar í Grafarvogs-
kirkju. Skáldið ber sig vel og nýtur lífsins
í eigin upphæðum. Allir þekkja Megas og
flestir bera virðingu fyrir honum og verkum
hans. Með árunum hafa allir helstu eigin-
leikar hans komið æ betur í ljós.
Hann er fastur fyrir, ósveigjanlegur,
sérvitur, ótrúlega minnugur (kann allan sinn
kveðskap utan að) hlýr og hjálpfús en líka
hégómlegur og viðkvæmur.
Óttar dregur enga dul á að að Megas
hafi verið kröfuharður og á köflum erf-
iður í samstarfi þeirra um bókina en segir
það einfaldlega til marks um margbrotinn
persónuleika skáldsins. Í lokaorðum
bókarinnar segir Óttar:
Við Megas höfum verið vinir um árabil og
leiðir okkar hafa víða legið saman. Það er erf-
itt að gera þessari vináttu einhver skil í bók
sem þessari. Megas er í raun margir ólíkir
menn sem ég hef fengið að kynnast. Sumir
eru þægilegir og vinfastir í samskiptum en
aðrir erfiðari og enn aðrir gjörsamlega óþol-
andi. En það er sama hvernig þessir menn
eru, allir eru þeir hluti af þeirri merkilegu
heild sem Megas er. Ég er þakklátur fyrir að
hafa fengið að kynnast svo mörgum hliðum
á Megasi.…
Flekkefjord
Overlege - Anestesiavdelingen
Vi har ledig en nyopprettet fast 100 % stilling for overlege med
spesialisering i anestesiologi. Tiltredelse snarest event. etter avtale.
Stillingen er p.t. 4 - delt hjemmevakt.
Sørlandet sykehus HF, Flekkefjord har lokalsykehusfunksjon for
Listerregionen i Vest-Agder samt Lund og Sokndal kommuner i
Rogaland. Sykehuset har akuttfunksjon for både medisin og kirurgi,
traumemottak og fødeavdeling.
Opplysninger: Christian Stremme, fagansvarlig,
tlf. +47 38 32 73 93.
Søknadsfrist: 17.05.2015
Søknad og CV registreres elektronisk i vårt søknadsprogram.
Informasjon og fullstendig utlysning finnes på www.sshf.no/jobb
Ønsker kun kontakt med søkere til stillingen.
fra
nt
z.n
o
- Trygghet når du trenger det mest
Sørlandet sykehus HF er regionens største kompetansebedrift,
med over 5000 ansatte fordelt på ulike institusjoner i begge
Agderfylkene. Vi har ansvar for spesialisthelsetjenesten innen
somatikk, psykiatri og avhengighetsbehandling. Spesialist-
helsetjenestens hovedoppgaver er pasientbehandling,
utdanning av helsepersonell, forskning og opplæring
av pasienter og pårørende.