Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.05.2015, Qupperneq 36

Læknablaðið - 01.05.2015, Qupperneq 36
268 LÆKNAblaðið 2015/101 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R gert útaf við alþýðuvísindi og alþýðu- menningu þjóðarinnar þar sem enginn má hafa skoðun á sögunni eða bókmennt- unum nema hann hafi lokið doktorsprófi í greininni. Alþýðumaður eins og ég má ekki hafa skoðun á Íslendingasögunum og alþýðumaður eins og Megas er ekki mark- tækur þegar kemur að Passíusálmunum. Þetta er afskaplega dapurleg þróun.“ Hallgrímur Pétursson er tvímælalaust það skáld sem hefur haft mest áhrif á skáldskap Megasar að sögn Óttars. „Mörg kvæða Megasar eru bókstaflega ort í anda Hallgríms og stundum finnst manni að þeir renni saman í einn mann. Ég velti því talsvert fyrir mér hversu andlega skyldir þeir eru og hversu margt er líkt með þeim þegar grannt er skoðað. Samfélagið for- dæmdi Hallgrím og ekki hefur Megas alveg verið laus við fordæmingu og umtal af ýmsu tagi.“ Aldrei skeytt um afleiðingar eða áhrif Neysla Megasar á lyfjum og áfengi hefur verið lýðum ljós um áratugaskeið og þá varð ekki síður fréttnæmt er hann sneri við blaðinu og snerti ekki vímuefni um 12 ára skeið frá 1979-1991. Þegar því lauk gaf hann AA-samtökunum og edrúpáfum langt nef og gaf meira segja út plötu er bar þann ögrandi titil Til hamingju með fallið. Margir áttu erfitt með að kyngja slíkri kaldhæðni. „Megas hefur í þessum skilningi verið sinn versti óvinur. Hann hefur í rauninni aldrei skeytt neitt um afleiðingar eða áhrif gjörða sinna eða listsköpunar. Oft og tíð- um hefur fólk átt erfitt með greina þarna á milli og lesið persónu hans að ósekju úr skáldskap hans. Hann hefur því verið ásakaður um að taka málstað vændiskaup- enda, nauðgara og barnaníðinga þegar hann hefur ort kvæði í orðastað slíkra ein- staklinga án þess að taka afstöðu sjálfur til athæfis þeirra. Þetta hafa auðvitað margir rithöfundar gert án þess að nokkrum detti í hug að þeir séu að lýsa eigin skoðunum eða reynslu en Megas hefur mátt þola slíkar ásakanir.“ Stormasamt líf Megasar og á köflum óreglusamt heyrir sögunni til nú þegar skáldið stendur á sjötugu og þjóðin hefur endanlega tekið það í sátt. „Síðasta þjóð- skáldið“ sagði einn gagnrýnandi í lofsam- legum dómi um heildarljóðasafn Megasar er kom út hjá Forlaginu 2012. Svona farast Óttari orð um sess Meg- asar í dag:. Lífið gengur sinn vanagang. Plötur hans og Senuþjófanna ganga vel og seljast ágætlega. Engir textar hafa vakið einhverja stórhneyksl- un eða umtal. Margir þeirra eru reyndar tor- skildir en það breytir engu um söluna. Hann fær heiðurslaun listamanna, býr í búnkernum og er duglegur að skrifa. Friður ríkir um skáldið og fáir hnýta í það fúkyrðum lengur. Megas er kominn upp á nýjan stall þar sem hann nýtur mikillar virðingar og þjóðin búin að fyrirgefa honum gamlar ávirðingar. Enginn veltir því lengur fyrir sér hvort hann drekki bjór á börunum eða ekki. Ungir tón- listarmenn sækjast eftir því að fá að spila með Megasi og kynnast honum. Kvæðabókin var ein sigurganga eins og síðustu Passíusálmatónleikar í Grafarvogs- kirkju. Skáldið ber sig vel og nýtur lífsins í eigin upphæðum. Allir þekkja Megas og flestir bera virðingu fyrir honum og verkum hans. Með árunum hafa allir helstu eigin- leikar hans komið æ betur í ljós. Hann er fastur fyrir, ósveigjanlegur, sérvitur, ótrúlega minnugur (kann allan sinn kveðskap utan að) hlýr og hjálpfús en líka hégómlegur og viðkvæmur. Óttar dregur enga dul á að að Megas hafi verið kröfuharður og á köflum erf- iður í samstarfi þeirra um bókina en segir það einfaldlega til marks um margbrotinn persónuleika skáldsins. Í lokaorðum bókarinnar segir Óttar: Við Megas höfum verið vinir um árabil og leiðir okkar hafa víða legið saman. Það er erf- itt að gera þessari vináttu einhver skil í bók sem þessari. Megas er í raun margir ólíkir menn sem ég hef fengið að kynnast. Sumir eru þægilegir og vinfastir í samskiptum en aðrir erfiðari og enn aðrir gjörsamlega óþol- andi. En það er sama hvernig þessir menn eru, allir eru þeir hluti af þeirri merkilegu heild sem Megas er. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast svo mörgum hliðum á Megasi.… Flekkefjord Overlege - Anestesiavdelingen Vi har ledig en nyopprettet fast 100 % stilling for overlege med spesialisering i anestesiologi. Tiltredelse snarest event. etter avtale. Stillingen er p.t. 4 - delt hjemmevakt. Sørlandet sykehus HF, Flekkefjord har lokalsykehusfunksjon for Listerregionen i Vest-Agder samt Lund og Sokndal kommuner i Rogaland. Sykehuset har akuttfunksjon for både medisin og kirurgi, traumemottak og fødeavdeling. Opplysninger: Christian Stremme, fagansvarlig, tlf. +47 38 32 73 93. Søknadsfrist: 17.05.2015 Søknad og CV registreres elektronisk i vårt søknadsprogram. Informasjon og fullstendig utlysning finnes på www.sshf.no/jobb Ønsker kun kontakt med søkere til stillingen. fra nt z.n o - Trygghet når du trenger det mest Sørlandet sykehus HF er regionens største kompetansebedrift, med over 5000 ansatte fordelt på ulike institusjoner i begge Agderfylkene. Vi har ansvar for spesialisthelsetjenesten innen somatikk, psykiatri og avhengighetsbehandling. Spesialist- helsetjenestens hovedoppgaver er pasientbehandling, utdanning av helsepersonell, forskning og opplæring av pasienter og pårørende.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.