Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2015, Síða 43

Læknablaðið - 01.05.2015, Síða 43
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Feitir leikarar og skemmtikraftar njóta vafasamra vinsælda í heiminum í dag. Flestir þeirra eiga í baráttu við ofþyngdina og hafa sumir gert hana opinbera. Oprah Winfrey er goðsögn í skemmtanaiðnaðinum og er sögð valdameiri en flestir. Hún hefur í gegnum tíðina farið upp og niður í líkams- þyngd (á þriggja ára tímabili rokkaði hún á milli 66 og 108 kg). Hún hefur reynt alla hugsanlega matar- og megrunarkúra og oft gert það fyrir opnum tjöldum í sjónvarps- þáttum sínum. Niðurstaða hennar eftir ótal slíkar tilraunir var einföld; borða minna og hreyfa sig meira. Robert de Niro er þekktur fyrir að undir- búa sig vandlega fyrir hvert hlutverk og hefur bætt á sig þyngd til að falla betur að hlutverkum. Fyrir hlutverk í Raging Bull og Al Capone fór hann yfir 30 í líkamsþyngdar- stuðli en léttist jafnharðan aftur þegar tökum lauk. Leikarinn Forest Whitaker lenti í annars konar vanda við tökur á stríðsmyndinni Platoon. Hann var ráðinn í hlutverk Big Harold vegna þess hversu feitur hann var en tökurnar reyndust svo líkamlega krefjandi að hann hríðhoraðist. Leikstjórinn, Oliver Stone, gerði athugasemd við þetta og krafð- ist þess að Whitaker bætti á sig kílóunum að nýju. Marlon Brando var ein skærasta stjarna Hollywood upp úr miðri síðustu öld. Hann fitnaði gríðarlega í lok ferils síns og sagt er að við tökur á Apocalypse Now hafi hann bannað að líkami hann sæist allur. Í mynd- inni sést hann aðeins sitjandi og efri hluti líkamans er sýnilegur. Brando varð engu að síður 95 ára gamall rétt eins og hinn stórvaxni Ernest Borgnine. Fleiri leikarar í ofþyngd eru komnir á efri ár: Gérard Depardieu, Dan Aykryod, Alec Baldwin, John Goodman og Roseanne Barr en James Gandolfini úr Soprano lést um aldur fram, 52 ára. Mörg fleiri dæmi mætti tína til um feita leikara sem andast hafa á miðjum aldri eða fyrr, en lystarstol hefur ekki síður tekið sinn toll af einstaklingum í kastljósinu. Þekktust þeirra er eflaust Twiggy sem kom fram á sjöunda áratugnum og samstundis varð drengjalegur líkamsvöxtur fyrirmynd ungra kvenna í stað hinna mjúku bogadregnu lína sem Marilyn Monroe er þekktust fyrir. Twiggy lifði þó af eigið útlit sem ekki verður sagt um margar af yngri sýningarstúlkum sem fylgdu í fótspor hennar. Mörg dapurleg dæmi eru um dauðsföll ungra stúlkna af völdum lystarstols í tískusýningarheiminum og hefur það haft áhrif bæði til góðs og ills. Erfitt er að ímynda sér hvað sé aðlaðandi við líkama sem eru svo greinilega vannærðir og margar konur í tísku- og afþreyingariðnaði hafa tjáð sig um reynslu sína af lystarstoli. Það má reyndar setja spurningamerki við hvort slíkar umræður hafi styrkt hugmyndir almennings um hvernig heilbrigður líkami á að líta út. Við erum sannarlega betur upplýst í dag en þegar feitu leikararnir veltust um hvíta tjaldið í árdaga kvikmyndanna. Við vitum að offita er áhættuþáttur fyrir nokkrum algengustu lífsstílssjúkdómunum. Það er kannski einföldun en hér á við hin tíma- lausa ráðlegging að hóf er í öllu best. Rössner S. Fet i buken – stor på duken. Stumfilmstiden var en guldålder för feta aktörer. Läkartidningen 2015; 112: 412-4. HS þýddi ur sænsku Bæjarflöt 4 112 Reykjavík Sími: 568 9095 www.gagnaeyding.is Varðveislu trúnaðarupplýsinga lýkur með eyðingu þeirra Við vinnum eftir vottuðu gæðakerfi

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.