Frjáls verslun - 01.08.2006, Page 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
inu áttu fagfjárfestar kost á að
kaupa 30 milljónir nýrra hluta
fyrir 2,2 milljarða króna að
söluvirði. Þeir óskuðu eftir að
kaupa fyrir 29,3 milljarða sem
er þrettánföld umframeftirspurn.
Allir helstu lífeyrissjóðir landsins
auk verðbréfasjóða og fjárfest-
ingafélaga voru á meðal kaup-
enda. Árni Oddur Þórðarson er
stjórnarformaður Marels.
15. september
Norvik kaupir
stærstu sögunar-
myllu Lettlands
Norvik hf., móðurfélag Byko
og fleiri félaga í eigu Jóns
Helga Guðmundssonar, hefur
keypt stærstu sögunarmyllu
Lettlands, VIKA Wood. Vika
Wood var
stofnað árið
1995 og
er starfs-
mannafjöldi
um 200.
Fyrirtækið
flytur út timb-
urafurðir til
um 15 landa
víðs vegar um heiminn og er
Japan helsti markaðurinn.
Norvik er eftir kaupin stærsti
útflytjandi timburs frá Lettlandi.
Fyrir kaupin var Norvik með
timburverksmiðjurnar Byko-
Lat, eða frá 1993, og Cesis
frá 2003. Heildarvelta Norvikur
í Lettlandi er nálægt 8 millj-
örðum og er starfsmannafjöldi
um 800 manns.
16. september
Avion kaupir franska
ferðaskrifstofu
Sagt var frá því þennan dag
að Avion Group hefði í gegnum
franska dótturfélag sitt, Leisure
Group, fest kaup á 100% hluta-
fjár í frönsku ferðaskrifstofunni
Vacances Heliades.
Heliades sérhæfir sig í
ferðum til Grikklands og Kýpur,
en með kaupunum verður XL
Leisure Group fimmti stærsti
ferðaþjónustuaðili Frakklands.
Þá á Avion Group annað dótt-
urfélag í Frakklandi, Star
Airlines.
17. september
„UM GRJÓTFLUG
ÚR GLERHÚSI“
Magnús Kristinsson, útgerðar-
maður í Eyjum, svaraði Björgólfi
Thor Björgólfssyni í bréfi sem
hann sendi til Morgunblaðsins
og birtist í sunnudagsútgáfu
blaðsins 17. september.
Bréfið bar yfirskriftina „Um
grjótflug úr glerhúsi“ og er
auðvitað enn einn anginn af
Straums-málinu frá síðasta
sumri en segja má að það
hafi blossað upp á yfirborðið
með brottrekstri Þórðar Más
Jóhannessonar úr stóli forstjóra
félagsins. Átökin í kjölfarið urðu
hörðustu átök sumarsins í við-
skiptalífinu og um þau hefur
mikið verið skrifað.
Magnús er í bréfi sínu að
svara Björgólfi Thor sem í afar
löngu viðtali í sunnudagsblaði
Morgunblaðsins í endaðan
ágúst ræddi m.a. um ósættið
við Magnús Kristinsson og
trúnaðarbrestinn við Þórð Má
Jóhannesson sem varð til þess
að stjórn Straums-Burðarás
sagði Þórði upp.
Bréf Magnúsar var býsna
langt og vakti m.a. athygli
fyrir hve lipur og litríkur ritstíll
einkenndi textann. Magnús
sagði í bréfi sínu að viðtal
Morgunblaðsins við Björgólf
hefði verið „8 síðna kynning-
arrit Björgólfs“.
Fjölmiðlar fjölluðu einna
mest um þann kafla bréfsins
sem var um jafnan rétt hluthafa
- en þar fjallar Magnús m.a.
um sölu Samsonar á bréfum til
Burðaráss.
Lítum betur á brot úr
þessum umtalaða kafla úr bréfi
Magnúsar:
„Ég man það líka að í und-
anfara sameiningar Kaldbaks
hf. og Burðaráss hf. seldi KEA
myndarlegan hlut í Kaldbaki
til óþekkts kaupanda fyrir
milligöngu Kaldbaks sjálfs.
Síðar sama dag kom í ljós að
kaupandinn var Samson undir
farsælli forystu BTB. Liðlega
sólarhring síðar seldi Samson
þessi sömu bréf til Burðaráss
sem þá laut einnig forystu BTB.
Skv. tilkynningu Samsonar
til Kauphallarinnar þann 24.
október 2004 var hagnaðurinn
af þessum viðskiptum BTB um
einn milljarður króna; það var
það verð sem stjórnarformaður
Burðaráss reyndist viljugur til
að greiða umfram það sem KEA
sætti sig við deginum áður. Og
hver var nú betur til þess fall-
inn að brúa þetta bil en einmitt
þeir félagarnir Samson og BTB?
Ég nenni ekki að rekja fleiri
svona sögur en þær eru til
marks um það, hversu brýnt er
að stjórnendum almennings-
hlutafélaga sé það aldeilis ljóst
að þeim ber umfram allt að
gæta hagsmuna félagsins sjálfs
og allra hluthafa þess - og það
jafnt,“ segir Magnús m.a. í
bréfinu.
19. september
OMX kaupir
Kauphöll Íslands
Tilkynnt var þennan dag að
OMX og Eignarhaldsfélagið
Verðbréfaþing hf. (EV), eig-
andi Kauphallar Íslands og
Verðbréfaskráningar Íslands,
Jón Helgi
Guðmundsson.
Magnús Kristinsson.