Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2006, Page 144

Frjáls verslun - 01.08.2006, Page 144
144 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6 STÆRSTU300 T T Samkeppnin á byggingavörumarkaði er bæði mikil og hörð. Stærstu fyrirtækin á þessu sviði, BYKO og Húsasmiðjan, eru hvort um sig með fjórðungshlut sem þýðir að helmingur markaðarins dreifist á önnur og smærri fyrirtæki, Þessi staðreynd svarar því best að samkeppnin á markaðnum er virk og neytendur geta verið öruggir um eðlilega verðmyndun,“ segir Brynja Hall- dórsdóttir, framkvæmdastjóri Norvikur. Hæg en örugg skref Umsvif Norvikur hafa á síðustu árum aukist jafnt og þétt. Hér heima starfrækir fyrirtækið verslanir BYKO, Nóatúns, Krónunnar, 11- 11, Elko, Intersport og fleiri – en aukinheldur fara umsvifin erlendis mjög vaxandi. Þannig var í sept- ember gengið frá kaupum fyrirtækisins á stærstu sögunarmyllu Lettlands, VIKA Wood, sem fram- leiðir 270 þúsund rúm- metra á ári. Með þessum kaupum verður Norvik stærsti útflytjandi timburs frá Lettlandi. „Umsvif okkar erlendis hafa einkennst af hægum en sæmilega öruggum skrefum, sem við teljum farsælla þegar til lengri tíma er litið. Erlend velta Norvikur er 12 til 13 millj- arðar á ársgrundvelli. Kjarni starfseminnar er enn sem fyrr í Lettlandi með umfangsmikinn rekstur í þremur verksmiðjum. Við höfum sótt til Rússlands sökum skógarauðlinda og til Bretlands vegna sölu á okkar afurðum. Því getum við sagt að öll aðfangakeðjan sé innan vébanda fyrirtækisins, frá hráefni til sölu og dreifingar á fullunninni vöru,“ segir Brynja, sem telur líklegt að Norvik muni auka umsvif sín erlendis í náinni framtíð. Verði sjónum þá einkum beint til baltnesku landanna, Rússlands og Bretlands. Uppbyggingin er langhlaup Norvik tók við rekstri Kaupáss fyrir þremur árum. Segir Brynja að stjórnendum félagsins hafi þá strax verið ljóst að mikið og erfitt upp- byggingarstarf væri fyrir höndum enda hefði félagið lengi verið án vel skilgreinds eignarhalds. „Við erum enn í þessu uppbyggingarferli og teljum að vel hafi tekist til. Þessi uppbygging er hins vegar lang- hlaup og samkvæmt því störfum við. Teljum okkur þó strax vera farin að sjá umtalsverðan árangur. Á matvörumarkaðnum höfum við náð að veita okkar helsta keppninaut verðugt aðhald. Hins vegar verður að segjast að þótt markaðsráðandi fyrirtækjum á Íslandi séu vissar skorður settar með lögum og stofn- unum sem falið er ákveðið eftirlitshlutverk þá virðast leikreglurnar á vellinum vera talsvert aðrar. Það verður að breytast,“ segir Brynja. Hún telur mikinn misskilning þegar sagt er að hækkandi matvöruverð í dag sé herkostnaður af verðstríðinu á síðasta ári. „Verðlagning á matvöru er önnur en hún var áður en þessi mikla samkeppni hófst. Hins vegar hafa ytri skilyrði breyst, svo sem veik- ing krónunnar og mikil verðbólga sem sjálf- krafa hækkar matvöruverð og á ekkert skylt við verðmyndun á matvörumarkaði.“ Byggingamarkaðurinn ári á eftir - Flest teikn sem uppi eru þessa stundina benda til þess að heldur sé að hægja á efnahagslífinu. Aðhaldsaðgerðir þær sem ríki, sveitarfélög og aðrir gripu til á vordögum virðast vera að bera tilætlaðan árangur. Eða hvað? „Það er misjafnt hvernig kólnunin í hag- kerfinu kemur að fyrirtækjum. Bygginga- markaðurinn er til dæmis alltaf um það bil einu ári á eftir hinni almennu hagsveiflu þannig að enn sem komið er hefur lítið breyst þar. Hins vegar er ljóst að hægja mun á í íslensku efnahagslífi, í mínum huga er spurningin aðeins hvenær og hve hratt það gerist.“ SAMKEPPNIN ER MIKIL OG HÖRÐ Norvik á góðri siglingu. Aukin umsvif erlendis og eins á matvörumarkaðnum hér heima, sem er langhlaup. Hörð samkeppni í byggingavörum. „Við erum enn í þessu uppbyggingarferli og teljum að vel hafi tekist til.“ NORVIK • BRYNJA HALLDÓRSDÓTTIR TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON • MYND: GEIR ÓLAFSSON NR. 15 Á AÐALLISTA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.