Frjáls verslun - 01.08.2006, Qupperneq 149
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6 149
AÐALLISTINN
T alsvert er síðan fólk fór að færa sig úr sterkum drykkjum yfir í bjór og léttvín. Fólk gerir orðið skýran greinarmun á
góðum víntegundum og slæmum. Almenn
þekking fólks á víni hefur aukist og framboðið
sömuleiðis. Í dag er hægt að velja til dæmis
Leffe munkabjór og hvítan Hoegaarden, svo
nokkuð sér nefnt,“ segir Ingibjörg Arnars-
dóttir, framkvæmdastjóri Karls K.Karlssonar,
einnar umsvifamestu heildverslunar landsins.
Vín frá „nýja heiminum“
Fyrirtækið, sem var stofnað af Karli K. Karls-
syni, er sextíu ára um þessar mundir og er því
orðið býsna rótgróið. Í byrjun var það með
umboð fyrir áfengi, snyrtivörur og húsbúnað
en í dag beinast áherslur
að dagvöru og drykkjum
- áfengum sem óáfengum.
Þekktustu vörumerkin eru
Stella Artois, Becks, San
Miguel, Torres, Campari,
Captain Morgan, Absolut,
Famous Grouse, Remy
Martin, Domain Laroche, Bava og Fetzer
- svo eitthvað sé nefnt.
Í sölu ÁTVR er hlutdeild bjórs um 61%,
léttvíns 21% og sterks áfengis 18%. „Þau
vínhéruð sem eru sterkust um þessar mundir
eru „nýi heimurinn“ sem ég kalla svo, það
er Ástralía og Chile. Svo stendur Spánn
auðvitað alltaf fyrir sínu, þaðan sem koma vín
eins og Torres og Faustino. Annars er mjög
sérstakt að á lista ÁTVR yfir tíu mest seldu
vínin kemur ekkert frá Frakklandi. Þetta
gengur annars í hringi og ekki ólíklegt að sala
á frönsku vínunum taki við sér á næstu miss-
erum. Nefni þar til dæmis margverðlaunuð
vín frá Domain Laroche sem eru í miklu upp-
áhaldi hjá mér og hafa sótt verulega á í sölu.
Annað vín, sem er gott og munkarómað, er
Gaja sem vínáhugamenn þekkja vel,“ segir
Ingibjörg Arnarsdóttir.
Sjö af fimmtíu í fæðingarorlofi
Ingibjörg Arnarsdóttir er viðskiptafræðingur
af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands.
Að því námi loknu starfaði hún við skrifstofu-
rekstur og fjármál hérna
um skeið uns hún flutti
með eiginmanni sínum til
London, þar sem hún starf-
aði á þriðja ár sem ráðgjafi
í fjármálakerfum. Þá lauk
hún MSc Finance prófi
frá Cass Business School í
London, en kom heim 2001 og tók þá við
starfi framkvæmdastjóra Karls K. Karlssonar.
Undanfarið hefur Ingibjörg verið frá störfum
vegna fæðingarorlofs. Það rifjar upp að fram-
kvæmdastjóra KEA á Akureyri var á síðasta
ári sagt upp störfum þegar hann hugðist fara
í feðraorlof. En er þetta gerlegt; geta stjórn-
endur farið í langt fæðingarorlof?
„Vissulega tekur á fyrir fyrirtæki að missa
leiðtogann í nokkra mánuði. Þetta krefst
mikillar skipulagningar en ég er svo heppin
að njóta stuðnings nánasta samstarfsfólks
míns sem styður mig dyggilega og leggur
töluvert á sig svo þetta gangi upp. Í dag eru
reyndar sjö af fimmtíu starfsmönnum okkar í
fæðingarorlofi sem er mjög ánægjulegt, finnst
mér. Það er langt síðan fyrirtækið markaði þá
stefnu að fylgja þeirri þróun sem hefur átt sér
stað í fæðingarorlofsmálum, því ég lít svo á að
atvinnulífið hafi ekki efni á því að missa hæft
starfsfólk vegna þess að það kýs að eignast og
ala upp börn.“
Stöðugleiki mikilvægur
Stöðugleiki í efnahagsmálum síðustu ár hefur
verið íslensku atvinnulífi mikilvægur, að mati
Ingibjargar. „Það segir sig sjálft að þá geta
stjórnendur gert áætlanir lengra fram í tím-
ann og beint sjónum sínum að daglegum
rekstri og framtíðarsýn. Í óstöðugleika eins
og nú ríkir, með tilheyrandi gengissveiflum,
snýst reksturinn meira um að bregðast við
aðstæðum heldur en að skapa þær. Þó að ég sé
bjartsýnismanneskja og líti þannig á að öllum
breytingum fylgi tækifæri, þá er fátt gott um
þetta að segja. Þó svo að fyrirtækin noti öll
tiltæk ráð til að verja sig gagnvart efnahags-
sveiflum þá endar alltaf með því að hagur
fyrirtækjanna og viðskiptavina þeirra bíður
einhvern skaða af.“
Sala á léttum vínum og bjór eykst á kostnað sterkra drykkja. Vínmenningin þroskast.
Óstöðugleikinn gerir rekstur erfiðan, segir framkvæmdastjóri Karls K. Karlssonar.
MUNKABJÓR OG
MARGRÓMUÐ VÍN
„Almenn þekking
fólks á víni
hefur aukist.“
NR. 124 Á AÐALLISTA
KARL K. KARLSSON • INGIBJÖRG ARNARSDÓTTIR
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON • MYND: GEIR ÓLAFSSON