Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2006, Side 194

Frjáls verslun - 01.08.2006, Side 194
194 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6 – Hvar leggið þið áherslu á að vaxa? „Við álítum að vaxtarmöguleikarnir séu í andalifur og anda- afurðum, blini og smuráleggi og svo í rækjunum. Við erum þegar svo stórir í reyktum laxi að við reiknum ekki með miklum vexti þar svo að áherslan er á hinar stoðirnar þrjár.“ – Hverjir eru helstu keppinautarnir? Eruð þið að keppa við Bakkavör? „Við eigum enga evrópska keppinauta, ekkert fyrirtæki á okkar sviði sem starfar á Evrópumarkaði eins og við gerum. Keppinautarnir eru einfaldlega stærstu fyrirtækin á þessu sviði í ein- stökum löndum. Nei, við erum ekki í samkeppni við Bakkavör. Bakkavör starfar fyrst og fremst í Bretlandi, er ekki evrópskt fyrirtæki eins og við og beitir sér á öðrum vettvangi, það framleiðir fyrst og fremst hvunndagsmat. Ég er hins vegar fullur aðdáunar á gífurlegri velgengni þeirra, Bakkavör hefur vaxið hratt og uppbygging þeirra er markviss.“ – Þú stýrir íslensku fyrirtæki og hefur væntanlega kynnst íslenskum stjórnendum. Hvernig koma þeir þér fyrir sjónir? „Mér finnst þeir ekkert sérlega ólíkir Frökkum og ég met mikils alla þá íslensku stjórnendur sem ég hef kynnst. Þeir koma mér fyrir sjónir sem hagsýnir, einbeittir, segja það sem þeim býr í brjósti, standa við fyrirætlanir sínar, gera það sem þeir segjast ætla að gera og eru metnaðarfullir fyrir hönd fyrirtækja sinna. Það vekur alltaf athygli hér meðal þeirra sem til þekkja þegar í ljós kemur að Labeyrie er í eigu Íslendinga. Fæstir vita mikið um Ísland en hér fer ekkert nema gott orð af Íslend- ingum og þeir sem fylgjast með vita hvað íslensk fyrirtæki hafa staðið sig vel og eru víða. Bakkavör er orðið stærst á sínu sviði í Bretlandi og við á okkar sviði á Evrópumarkaði. Metnaður Íslendinga og hagsýni er ein skýringin. Það sem ég met mest í fari Íslendinga er að þeir hafa hlutina einfalda, eru ekkert að hafa þá flóknari en nauðsyn er, það er auðvelt að skilja hvað þeir eru að fara og þá um leið mjög auðvelt að eiga samskipti við þá.“ – Hver er helsti munurinn á frönskum og íslenskum stjórnendum? „Frakkar ræða málin, Íslendingar framkvæma! Þessi íslenski háttur, að láta athafnir tala fremur en orð, hentar mér mjög vel.“ – Þar sem einu íslensku tengsl Alfesca eru eigendur og höfuðstöðvar skiptir vísast ekki miklu máli hvort Ísland er í eða utan Evrópusambandsins? „Nei, það skiptir Alfesca engu máli. Framleiðsla okkar og markaðir er óháð Íslandi. Hins vegar eru tengslin við Ísland sterk því flestir hluthafarnir eru íslenskir, höfuðstöðvarnar eru þar og flestir stjórnarmanna íslenskir. Andinn í fyr- irtækinu er líka mjög íslenskur. Þessa vikuna er ég tvo daga á Íslandi, þrjá í næstu viku. Stjórn hvers fyrirtækis okkar er mjög sterk, ég eyði miklum tíma með þeim og er tengiliður milli þeirra og íslensku eigendanna sem ég eyði líka miklum tíma með.“ – Þar sem starfsemi Alfesca er að öllu leyti óháð Íslandi og stjórnunarteymið að mestu franskt, væri þá ekki rökrétt- ara að höfuðstöðvarnar væru í París? „Nei, höfuðstöðvarnar hafa enga úrslitaþýðingu og hvert fyrirtæki er rækilega tengt þeim stöðum og mörkuðum sem þar starfar. Höfuðstöðvarnar halda aðeins utan um heildarreksturinn. Sannarlega væri ekki best að hafa höfuðstöðvar í París því að það er einmitt mikilvægt að halda fast í íslenskar rætur Alfesca. Það er hluti af mínu starfi að fara á milli fyrirtækjanna og svo til höfuðstöðvanna – og ég er mjög ánægður með það!“ – Á Norðurlöndum og kannski einkum í Danmörku hefur íslenskum fyrirtækjum verið tekið af nokkurri tortryggni. Hvernig er afstaðan til íslenskra fyrirtækja og fjárfesta hér? „Ímynd Íslands er frábærlega góð í Frakklandi, hvergi blettur þar á. Ég man í raun ekki eftir neinu öðru landi sem hefur á sér sambærilega ímynd hér. Fæstir neytenda vita þó að Labeyrie og önnur vörumerki Alfesca hér eru íslensk en tengslin við Ísland eru ekkert nema jákvæð.“ – Árangur þinn hjá Labeyrie hefur þótt mjög góður. Hvar hefur einbeiting þín í uppbyggingu Labeyrie hingað til helst legið? „Ég hef einbeitt mér að markaðsmálum og er almennt mjög upptekinn af neytendahliðinni, tel mikilvægt að vera nálægt viðskiptavinum og neytendum. Ég hef einnig haft athyglina mjög á tölunum – takmark hvers fyrirtækis er að skapa hluthöfum arð. Sjálfur hef ég átt hlut í fyrirtækinu alveg frá 1999 þegar það fór á markað. Af því ég hef almennt mikla trú á kostum þess að stjórnendur séu hluthafar hef ég beitt mér fyrir að svo sé. Það sýnir traust stjórnenda og trú á fyrirtækinu að þeir fjárfesti í því og ég hef hvatt samstjórnendur mína til þess. Alls eiga sextíu lykilstjórnendur Alfesca hlut í fyrir- tækinu. ég tel það bæði góða hvatningu fyrir stjórnendur og efla skilning þeirra á afleiðingum ákvarðana þeirra fyrir fyrirtækið og stöðu þess.“ X A V I E R G O V A R E , F O R S T J Ó R I A L F E S C A 300 stærstu eru stærstir vegna þess að þeir kunna að notfæra sér tækifærin sem bjóðast Flugkort Flugfélags Íslands fyrir þá sem eru – og hina sem vilja vera! flugkort@flugfelag.is | www.flugfelag.is | 570 3030 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S -F LU 3 43 69 09 /2 00 6 „Við álítum að vaxtarmöguleikarnir séu í andalifur og andaafurðum, blini, smuráleggi og svo í rækjunum.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.