Frjáls verslun - 01.08.2006, Síða 216
216 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
M
artin Scorsese er tvímælalaust einn af áhrifamestu kvik-
myndaleikstjórum samtímans. Allt frá því hann vakti
fyrst athygli með Mean Streets (1973) hefur hann verðið
í fararbroddi bandarískra leikstjóra og þegar litið er yfir
glæsilegan afrekslistann þá kemur ekki á óvart að hann
er yfirleitt í efstu sætum þegar verið er að kjósa bestu kvikmyndaleik-
stjórana.
Sá leikari sem Scorsese hefur treyst best er Robert De Niro, en
hann hefur leikið í átta kvikmyndum hans, síðast í Casino (1995).
Ástæðan fyrir því að De Niro hefur ekki leikið í kvikmynd eftir Scor-
sese síðan 1995 er ekki ósætti á milli þeirra, heldur að De Niro hefur
verið bundinn í öðrum verkefnum þegar Scorsese hefur leitað til hans
og einnig að stóru hlutverkin hafa verið fyrir yngri leikara. Scorsese
hefur því fundið sér
annan leikara til að
fylla í skarðið sem
De Niro skildi eftir
og er það Leonardo
DiCaprio, sem hefur
leikið í þremur síð-
ustu kvikmyndum
hans, Gangs of New
York, The Aviator og
nú síðast í The De-
parted, sem verið er
að frumsýna í Banda-
ríkjunum um þessar
mundir.
Martin Scorsese hafði ætlað Robert De Niro burðarhlutverk á móti
DiCaprio í The Departed og þar með að vera með tvo uppáhaldsleikara
sína í sömu kvikmynd, en De Niro var sem fyrr bundinn í öðru verk-
efni, var kominn af stað með The Good Shepard, sem hann leikstýrir og
leikur aðalhlutberkið í á móti Matt Damon, sem einnig leikur eitt aðal-
hlutverkið í The Departed. Til að fylla skarð De Niros dugði ekki minni
leikari en Jack Nicholson og er þetta í fyrsta sinn sem Nicholson leikur
undir stjórn Scorsese. Nicholson tók hlutverkinu fegins hendi og sagði
það vera tilbreytingu fyrir sig að leika siðlausan glæpaþrjót, sem hann
hafði ekki gert síðan hann lék The Joker í Batman (1989)
Scorsese á kunnuglegum slóðum Ef það eru einhverjar kvikmyndir
Martin Scorsese sem hægt er að segja að hafi sama grunn og The De-
parted, þá eru það GoodFellas og Casino þar sem hann var á slóðum
skipulagðrar glæpastarfsemi. Ef The Departed nálgast þær að gæðum
þá mega aðdáendur Scorsese búast við góðri kvikmynd.
The Departed er endurgerð kínversku myndarinnar Mou gaan
dou (Infernal Affairs,) sem notið hefur töluverðra vinsælla í hinum
vestræna heimi. Sögusviðið í upprunalegu myndinni er Hong Kong.
Það er fært til Boston þar sem lögreglan á í stríði við skipulagðan
glæpaflokk. Leonardo DiCaprio leikur ungan lögreglumann, Billy
Costigan, sem laumar sér inn í glæpaflokkinn sem Frank Costello
(Jack Nicholson) stýrir, til að komast að upplýsingum sem myndu
leiða til handtöku Costellos. Á meðan Costigan er á góðri leið með
að ná trúnaði Costellos hefur Colin Sullivan (Matt Damon), ungur
glæpamaður úr liði Costellos, komið sér fyrir í sérsveit lögreglunnar
og er á framabraut þar. Myndin fjallar síðan um líf þessara tveggja
einstaklinga og afleiðingar þess að lifa tvöföldu lífi.
KVIKMYNDIR
TEXTI: HILMAR KARLSSON
LEIKIÐ
TVEIMUR
SKJÖLDUM
The Departed, þriðja samstarfsverkefni
Martin Scorsese og Leonardo DiCaprio
Jack Nicholson í hlutverki mafíuforingjans
Frank Costello og Matt Damon í hlutverki
krimma sem laumar sér í raðir lögreglunnar.
Martin Scorsese við tökur á The Departed ásamt Leonardo DiCaprio og Matt Damon.