Frjáls verslun - 01.11.2006, Qupperneq 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6
FORSÍÐUGREIN • MAÐUR ÁRSINS
Kaupir eingöngu í skráðum félögum bæði
í Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum
Hefur mikinn áhuga á félögum
tengdum hrávöru
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
33
61
4
07
/2
00
6
„Auðveldara en ég hélt“
Me› flátttöku á E*TRADE í gegnum Landsbankann b‡›st einstaklingum möguleiki á
a› n‡ta sér beint og millili›alaust áhugaver› fjárfestingartækifæri. Á E*TRADE getur
flú keypt og selt hlutabréf í Danmörku, Noregi, Svífljó›, Finnlandi og Bandaríkjunum.
E*TRADE er einfalt í notkun, í bo›i eru ókeypis námskei› og allt vi›mót er á íslensku.
Ert flú á ?
Kynntu flér máli› á landsbanki.is e›a hringdu í síma 410 4000.
Veit af því að á E*TRADE
er í boði verðbréfalán
Á hlutabréfasafn sem samanstendur
af átta félögum og tveimur vísitölum
tækjanna. Það er tvímælalaust vilji hjá yfirvöldum til að lækka verð
og kostnað hér. Nú þegar afnuminn hefur verið virðisaukaskattur á
geisladiskum hefði ég gjarnan vilja sjá það sama gerast um lyf!“
Forstjórastarfið
og fjölskyldulífið
- Hvernig gengur að samræma forstjórastarfið og fjölskyldulífið?
„Konan mín, Sigríður Ýr Jensdóttir, er að ljúka námi í heimilislækn-
ingum. Við vorum bæði í Menntaskólanum við Sund og fórum að
vera saman þegar við vorum sautján ára og höfum því verið saman
í tuttugu ár. Það kom aldrei neitt annað til greina en að við ynnum
bæði úti. Hún er í mjög krefjandi starfi sem læknir og vinnur oft á
vöktum en þetta gengur því við eigum góða að. Hún tekur tvímæla-
laust hærra hlutfall af heimilisstörfunum en ég svo það er mikið álag
á henni. Við eigum átta ára stelpu og fimm ára strák og þegar við
erum heima reynum við að vera með börnunum eins og við getum
– þannig viljum við hafa það. Við bjuggum rúmt ár í London, það
var góður tími, dóttir okkar náði enskunni eins og innfædd en svo
var betra að vera hér þar sem konan mín er að klára námið. Það gæti
verið gaman að búa þar aftur seinna.“
- Hver eru helstu áhugamálin?
„Við reynum að gera eitthvað saman um helgar, það þarf ekki að
vera neitt flóknara en að fara í sund sem við gerum oft. Þegar við
fórum í Disneyland í Frakklandi með krakkana fannst þeim ekkert
minna skemmtilegt að vera bara í sundlauginni á hótelinu. Auk þess
förum við í bíltúra, á kaffihús, erum úti við, heimsækjum vini og
fjölskyldu.
Við byrjuðum að fara með krakkana á skíði í fyrra og höldum því
örugglega áfram. Við erum að byggja sumarbústað við Kiðjaberg og
svo dreymir mig um að véla börnin einhvern tíma með mér í golf.
Ég spilaði golf fyrir tíu árum en seldi settið til að golfið væri ekkert
að freista mín.“
Harley Davidson hjólið
„Ég hef gaman af mótorhjólum, á Harley Davidson en tala ekki mikið
um þetta heima, það er ekki beint vinsælt! Svo hef ég gaman af bílum
og bátum, hef víst gaman af öllu með mótor. Ég er með nokkrum
félögum mínum í þessu, höfum keppt á go-cart bílum og farið á
Formúla 1 brautir í Evrópu. Það er ekki mikill tími í svona lagað, en
ég sting stöku sinnum af í þetta.“
Mér finnst líka gaman að laxveiðum og skytteríi en það gildir það
sama þar að mér dugir alveg að fara í stutta túra og kannski bara einu
sinni á ári. Ég þarf ekkert að vera alltaf að þessu.“