Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2006, Blaðsíða 99

Frjáls verslun - 01.11.2006, Blaðsíða 99
Í flokki þjónustu hlutu ENNEMM og KB-banki EFFIE gullverðlaun fyrir herferðina „nám er lífsstíll“. Á myndinni eru, frá vinstri talið, Hallur A. Baldursson, Dagur Sigurðsson, Þorsteinn Guðmundsson frá ENNEMM, Birna Rún Gísladóttir og Ingólfur Helgason frá KB-banka á Íslandi ásamt Jóni Sigurðssyni viðskiptaráðherra sem afhenti verðlaunin. Glitnisherferð heiðruð. Elín Helga Sveinbjörnsdóttir og Sverrir Björnsson frá Hvíta húsinu, Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri markaðssvið Glitnis, og viðskiptaráðherra. BESTU HERFERÐIRNAR Árangur og aukning í sölu er lögð til grundvallar í Effie-keppni Sambands íslenskra auglýsingastofa um bestu auglýsingaherferðirnar. Bernhard og H:N fengu gullið í flokki vöru fyrir að auka sölu á Hondajeppum um nær 100%. Alls sautján innsendingar bárust í samkeppni Sambands íslenskra auglýsingastofa um Effie verðlaunin svonefndu sem haldin var á dög- unum, þar sem keppt var um bestu auglýs- ingaherferðir síðustu ára. Þetta er í annað sinn sem efnt er til þessarar samkeppni hér á landi, en hún er haldin árlega í flestum löndum Evrópu. Hér á landi eins og ann- ars staðar þar sem keppnin er haldin byggir dómnefnd mat sitt á því hvaða sannanlegum árangri herferðirnar skila viðskiptavinum auglýsingastofanna. Bílar fengu gull Þegar horft er til mælan- legs árangurs kom ekki á óvart að í flokki vöru í Effie-keppninni skyldu H:N mark- aðssamskipti og Bernhard fá gullverðlaun. Með kynningarherferðinni 4X4XCR-V, sem unnin var af sérfræðingum H:N, náðist að auka sölu á Honda smájeppum um 99%, eða um 57% umfram áætlanir. Í sama flokki fengu Íslenska auglýsinga- stofan og Toyota sömuleiðis gull, en herferðin til kynningar á Aygo-smábílum, sem efnt var til fyrr á þessu ári, tókst afburðavel þannig að staða Toyota í flokki smábíla er nú orðin afar sterk, líkt og á öðrum sviðum íslensks bíla- markaðar. Í flokki þjónustu fengu ENNEMM auglýs- ingastofa og KB-banki gullið fyrir herferðina Nám er lífs- stíll, sem er fjármálaþjón- usta bankans fyrir ungt fólk og námsmenn. Með henni tókst bankanum, sem hafði fyrir veika stöðu í þessum markhópi, að auka hlutdeild sína og ná for- ystu. Greinargerðin gildir 70% „Við teljum eðli- legt, miðað við stærð markaðarins hér á landi, að fá um 15 til 20 herferðir í keppnina hverju sinni,“ segir Ingólfur Hjörleifsson, fram- kvæmdastjóri SÍA, sem bar hitann og þung- ann af skipulagi keppninnar. „Í ár voru inn- sendingarnar sautján og því megum við vel við una. Í Effie-keppninni, sem við höldum annað hvert ár hér á landi, horfir dóm- nefndin sérstaklega til þess hvernig staðið er að undirbúningi auglýsingaherferða og öllu rannsóknarstarfi, sem er auðvitað forsenda góðs skipulags herferða og að þær skili árangri.“ Sýnir árangurinn Dóm- nefnd Effie-keppninnar skipa forstjórar og yfirmenn á markaðssviðum nokk- urra af stærstu fyrirtækjum landsins svo og reyndir auglýsingamenn af SÍA-stofum. „Þetta er fólk sem lifir og hrærist í að skipuleggja og meta markaðsaðgerðir og því liggur beint við að fela því dómnefnd- arstörf,“ segir Ingólfur. Hann bætir við að Effie-keppnin sýni svart á hvítu árang- urinn af því mikilvæga starfi við undirbún- ing auglýsingaherferða sem ókunnugum er almennt hulið. Dómnefndin horfir sérstaklega til þess hvernig staðið er að undirbúningi auglýsingaherferða F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6 99 TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON • MYND: GEIR ÓLAFSSON BESTU HERFERÐIRNAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.