Frjáls verslun - 01.11.2006, Blaðsíða 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
9. mars
BJÖRGÓLFUR Í 350. SÆTI FORBES
Björgólfur Thor Björgólfsson
er ríkasti Íslendingurinn.
Hann var í 350. sæti á lista
bandaríska tímaritsins For-
bes yfir 500 ríkustu menn
heims. Bill Gates, stofnandi
Microsoft, er ríkasti maður
heims.
27. mars
ÖLLUM SAGT UPP Á VELLINUM
Allir íslenskir starfsmenn Varnar-
liðsins, 592 að tölu, fengu upp-
sagnarbréf. Þetta kom fram í
kjölfar þess að Bandaríkjamenn
höfðu lýst því yfir að þeir ætl-
uðu að draga stórlega saman í
umsvifum sínum á Vellinum og
fara með flugflota sinn í burtu.
Viðræður um varnarsamstarf
þjóðanna fóru fram í kjölfarið.
Hjónin Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, og Ingibjörg
Kristinsdóttir landslagsarkitekt gáfu 500 þúsund Bandaríkjadala,
39 milljónir króna, til uppbyggingar menntaverkefnis Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna í Sierra Leone í Vestur-Afríku. Til stendur
að byggja 50 skóla fyrir gjafaféð og í þeim munu 5 þúsund börn
njóta góðrar grunnmenntunar.
9. apríl
ÓLAFUR OG INGIBJÖRG GEFA
39 MILLJÓNIR TIL SIERRA LEONE
Ingibjörg Kristinsdóttir og Ólafur Ólafsson ásamt syni sínum, Ólafi Orra.
5. maí
Eigið fé RÚV
neikvætt um
186 milljónir
Eigið fé RÚV var neikvætt um
186 milljónir króna í lok síðasta
árs en hafði verið jákvætt um
10,2 milljónir í upphafi ársins.
Tap á rekstri RÚV var 196,2
milljónir á síðasta ári. Rekstrar-
tekjur RÚV voru tæpir 3,6 millj-
arðar króna.
Fyrir Alþingi
liggur frum-
varp um að
breyta RÚV
í hlutafélag.
Ætlunin er að
eiginfjárhlut-
fall RÚV hf.
verði 10% í
upphafi eða sem nemur um 500
milljónum.
Páll Magnússon,
útvarpsstjóri
RÚV.
Skýrslan
um efna-
hags-
ástandið
hér á landi
eftir þá
Tryggva
Þór Her-
bertsson,
prófessor og forstöðumann
Hagfræðistofnunar Háskólans,
og Frederic S. Mishkin, pró-
fessor við Columbia háskóla í
New York, vakti mikla athygli.
Hún var fyrst kynnt í New
York. Viðskiptaráð Íslands
stóð að gerð skýrslunnar sem
bar yfirskriftina „Financial
Stability in Iceland“.
Tryggvi og Mishkin nefndu
í skýrslunni fjögur atriði sem
gætu haft áhrif til hins betra
á stöðugleika í íslensku efna-
hagslífi í framtíðinni. Fyrir það
fyrsta nefndu þeir að Fjármála-
eftirlitið verði fært inn í Seðla-
banka Íslands, þannig verði
það skilvirkara. Þeir lögðu til
að viðskiptabankarnir veiti
meiri og betri upplýsingar um
starfsemi sína. Þá nefndu þeir
að dregið yrði úr áhrifum hús-
næðis á vísitölu neysluverðs
sem mælir
verðbólg-
una. Loks
hvöttu þeir
til þess að
ríkisstjórnin
búi til fjár-
málareglu
sem dragi
úr áhrifum hagsveiflunnar í
íslensku viðskiptalífi. Í skýrsl-
unni segir að grunnstoðir ís-
lensks efnahags séu traustar.
Á fundi í New York þar
sem skýrslan var kynnt sagði
Mishkin að íslenska hagkerf-
ið væri verulega sveigjanlegt
og hann varaði við að líta á
viðskiptahallann sem mikið
hættumerki. Ef litið væri til
þess hvað lægi að baki hon-
um þá væri viðskiptahalli
vegna lántöku til arðbærra
fjárfestingarverkefna ekki
slæmur þar sem þær fjárfest-
ingar myndu í framtíðinni
standa undir endurgreiðslu á
lánum. Hann hafði orð á því
að staða ríkissjóðs á Íslandi
væri sterk vegna mikilla niður-
greiðslna skulda á undanförn-
um árum.
3. maí
TRYGGVI ÞÓR OG MISHKIN
Tryggvi Þór
Herbertsson
Frederic S.
Mishkin.