Frjáls verslun - 01.11.2006, Blaðsíða 73
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6 73
N Æ R M Y N D A F M A T T H Í A S I I M S L A N D
M
atthías Páll Imsland er fæddur
27. janúar 1974 og ólst upp í
Reykjavík. Foreldrar hans eru
Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir,
ráðgjafi á Svæðisvinnumiðlun
Akraness, og Páll Imsland strætisvagnabíl-
stjóri. Fyrstu sjö ár ævinnar bjó hann í Breið-
holti en hóf skólagöngu í Ísaksskóla. Eftir
það bjó hann nokkur ár í Vesturbænum og í
Garðabæ og gekk í skóla þar. Þegar Matthías
var 15 ára fluttist hann til afa síns og ömmu
í Smáíbúðarhverfinu þegar móðir hans fór
utan til náms, en lauk þó skyldunámi í
Garðaskóla í Garðabæ. Að því loknu sótti
Matthías nám við Menntaskólann að Laug-
arvatni og útskrifast þaðan árið 1995. Hann
segir árin á Laugarvatni sér afskaplega minn-
isstæð enda um skemmtilega tíma að ræða.
„Félagslífið var bæði mikið og fjörlegt og ég
á enn marga og góða vini sem ég kynntist á
menntaskólaárunum að Laugarvatni.“
Nám í Svíþjóð og Bandaríkjunum
Að loknu stúdentsprófi lá leiðin í Háskóla
Íslands þar sem Matthías hóf nám í stjórn-
málafræði sem hann lauk með BA-prófi
þremur árum síðar. Þaðan fór hann í fram-
haldsnám til Lundar í Svíþjóð þar sem hann
var í eitt ár og lauk meistaragráðu í málefnum
Evrópu. Því næst hóf hann nám til meist-
araprófs í alþjóðaviðskiptum við Háskóla
Íslands sem hann mun ljúka í febrúar á næsta
ári. Einnig stundaði Matthías MBA-nám við
North Park University í Chicago. Þrátt fyrir
að hafa ekki lokið því námi er vitnisburður
Matthíasar frá skólanum mjög góður. Hann
er sagður annar af tveimur bestu nemendum
sem sótt hafa framhaldsnám við háskólann
enda fékk Matthías A+ fyrir öll verkefni
nema eitt þar sem hann fékk A.
,,Árið í Lundi var alveg frábær tími. Ég
bjó á stúdentagarði ásamt öðrum masters-
nemum og við skemmtum okkur mikið enda
er Lundur líflegur stúdentabær þar sem er
margt ungt fólk yfir vetrarmánuðina. Vorið
og sumarið er ótrúlega fallegur tími í Lundi
enda mjög gróðursælt og allt í blóma. Banda-
ríkin eru líka frábær en samt sem áður mjög
ólík Svíþjóð. Ég upplifði meiri samkeppni
í Bandaríkjunum og þegar ég hóf nám þar
ákvað ég að standa mig vel og tók námið
mun fastari tökum en í Lundi þar sem meira
var hugsað um félagsskapinn og að skemmta
sér. Í Bandaríkjunum lagði ég mig allan
fram og lærði eins og vitlaus maður enda
námið fjölbreytt og áhugavert. MBA-námið
í Chicago var blanda af mörgum viðskipta-
tengdum fögum þar sem mikil áhersla var á
hópvinnu. Hóparnir voru samsettir af fólki
með mismunandi bakgrunn úr atvinnulífinu
og maður naut þess að læra með nemum
með ólíkan bakgrunn. Helsti kosturinn við
námið var tenging þess við atvinnulífið og sú
reynsla sem fékkst með því.“
Í keppni við sjálfan sig
Eiginkona Matthíasar heitir Kristín Edda
Guðmundsdóttir og er grunnskólakennari.
Matthías segir málin hafa þróast hratt eftir
að hann og Kristín hittust
fyrst. „Við kynntumst árið
1999, skömmu áður en ég
fór til Bandaríkjanna, og
við giftum okkur 2001.“
Kristín og Matthías eiga
þrjú börn sem öll bera ætt-
arnafnið Imsland. Elstur er
Albert Agnar sem er 5 ára,
miðju barnið, Guðmundur
Helgi, er 2 ára og yngst er
Þórunn Ásta, 14 mánaða.
Matthías segist ekki eiga mörg áhuga-
mál fyrir utan fjölskyldu sína og vinnu.
„Ég vinn mikið en er ekki haldinn neinni
sérstakri dellu þrátt fyrir að hafa gaman af
mörgu. Mér þykir til dæmis mjög gaman af
því að horfa á fótbolta og held með KR og
Liverpool og fylgist líka svolítið með hand-
bolta. Stangveiði er tiltölulega nýtt áhugamál
hjá mér og mér tekst gersamlega að gleyma
mér við veiðina. Ég er eirðarlaus að eðlis-
fari, en það hleypur mikið kapp í mig við
veiðarnar og ég gleymi gersamlega stund og
stað. Hér áður hélt ég að laxveiði yrði það
síðasta sem ég fengi áhuga á en í dag set ég
upp áætlun í upphafi veiðinnar og það þarf
alveg tvo hrausta menn til að ná mér upp úr
ánni að loknum degi. Tíminn líður ótrúlega
hratt þegar maður er að veiða. Umhverfið er
róandi, rennandi vatn og fuglasöngur þannig
að mér líður ótrúlega vel.
Satt best að segja er ég mikill keppn-
ismaður í mér. Í gamla daga spilaði ég mikið
bridge en hætti því þegar ég var farinn að
hrökkva upp á nóttinni með andfælum og
muna að í spili 63 hefði ég getað náð einum
slag meira hefði ég svínað út níunni og
þannig náð góðu „end play“. Ég á auðvelt
með að einbeita mér að verkefnum og hef
mikinn metnað fyrir því sem ég tek mér fyrir
hendur. Keppnisskapið beinist ekki síst að
sjálfum mér og mér þykir gaman að setja mér
krefjandi markmið og ég fæ ekkert meira út
úr því keppa við aðra. Ef ég lofa sjálfum mér
að gera eitthvað verð ég að standa við það.
Ég lít svo á að ef maður
getur ekki staðið við eitt-
hvað gagnvart sjálfum sér
geti maður ekki staðið sig
gagnvart öðrum,“ segir
Matthías.
Matthías er flokks-
bundinn framsóknar-
maður og fylgist vel með
í pólitík. Aðspurður seg-
ist hann ekki bera neina
drauma um pólitískan frama í brjósti. „Mér
hefur aldrei dottið í hug að fara í framboð
og þykir óhugsandi að ég geri það í fram-
tíðinni. Ég fæddist inn í sjálfstæðisfjölskyldu
og var flokksbundinn í Sjálfstæðisflokknum
fram yfir tvítugt en sagði mig þá úr honum.
Nokkrum árum seinna tók ég svo ákvörðun
um að ganga í Framsóknarflokkinn. Að eigin
mati var það ákveðið þroskamerki hjá mér.
Ég var farinn að sjá hefðbundin gildi í lífinu
í öðru ljósi og þykja þau mikilvæg,“ segir
Matthías.
METNAÐARFULLUR
OG FRAMSÝNN
„Þegar ég hóf nám í
Bandaríkjunum tók ég
strax ákvörðun um að
standa mig vel og tók
námið föstum tökum.“