Frjáls verslun - 01.11.2006, Blaðsíða 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6
N Æ R M Y N D A F M A T T H Í A S I I M S L A N D
Byrjaði snemma að vinna
Matthías bar út og seldi blöð sem krakki
eða tittur eins og hann orðar það sjálfur.
„Fimmtán ára fór ég að vinna hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur og vann þar öll sumur á
meðan ég var í námi, eða tíu ár. Eftir vet-
urinn í Bandaríkjunum, árið 2000, fékk ég
starf sem rekstrarstjóri á þjónustudeild Sím-
ans. Ég var hjá Símanum í fjögur ár og það
var afskaplega skemmtileg og góð reynsla
enda starfaði ég með góðu fólki með mikla
reynslu,“ segir Matthías.
Árið 2004 ákveða Matthías og Kristín
að breyta til og flytja norður á Blönduós
þar sem hún fer að kenna en hann fær starf
sem sviðsstjóri fræðslu-, félags- og menn-
STEFÁN ÞÓR BJÖRNSSON
SAGNFRÆÐINGUR:
Góð eftirherma
Stefán Þór Björnsson, sagn-
fræðingur og skjalastjórnandi
hjá Rarik, kynntist Matthíasi
í Háskóla Íslands. „Við erum
báðir félagssinnaðir, þekktum
margt fólk í skólanum, tókum
virkan þátt í félagslífinu og
kynntumst á einhverri sam-
komu og höfum verið góðir vinir
síðan. Matthíasi er heilmikill fýr
í eðli sínu og leggur mikið upp
úr mannlegum samskiptum.
Hann þekkir marga, á auðvelt
með að umgangast ólíkt fólk
og er með vítt og mikið tengsl-
anet. Matthías er fljótur að
reikna út stöðuna og spá fyrir
um hvernig fólk bregst við
ákveðnum aðstæðum og gerðir
þess í framhaldi af því. Hann
er snillingur í að tala fólk til og
sannfæra það og ég hef séð
hann telja fólki hughvarf við
ótrúlegustu aðstæður. Matthías
hefur ríka ábyrgðartilfinningu
og allt sem hann tekur að sér
gerir hann vel og fylgir eftir til
loka. Þegar hann dettur ofan í
eitthvað er hann nákvæmur og
leitar upplýsinga víða, les allt
sem hann finnur um málið og
hringir vítt og breitt til að leita
sér fanga.
Matthías á það til að vera
stríðinn og hefur gaman af að
gera vinum sínum grikk. Hann
á auðvelt með að breyta um
raddtegund og er því góð eftir-
herma og beitir þeim hæfileika
óspart til að stríða vinum og
kunningjum í gegnum símann.
Stundum hefur hann þóst vera
blaðamaður eða einhver frá
yfirvöldum og þannig tekist
að koma viðkomandi í erfiða
stöðu. Einu sinni var ég að
vinna að viðkvæmu máli sem
Matthías vissi mikið um þegar
hann hringir í mig og kynnir sig
sem blaðamann og fer að spyrja
mig mjög áleitinna spurninga
um málið. Hann virkaði mjög
harður og einbeittur og mér
stóð satt best að segja engan
veginn á sama hvað blaðamað-
urinn vissi mikið um málið enda
er ég óvanur að svara svona
spurningum og vildi hvorki
vera ókurteis né tala af mér.
Mér leið fremur illa á meðan á
samtalinu stóð og var orðinn
sveittur þegar því lauk. Bæði
vissi hann of mikið og spurði
svo beitt.“
RÓBERT STYRMIR HELGASON
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR:
Snemma metn-
aðarfullur
Róbert Styrmir Helgason við-
skiptafræðingur kynntist
Matthíasi í menntaskóla og hafa
þeir verið vinir síðan. „Ég varð
þess áskynja strax í mennta-
skóla að Matthías er metn-
aðarfullur og ætlaði sér að ná
langt í lífinu. Margir héldu að
hann ætlaði út í stjórnmál og að
hann færi í framboð. Hann var
SA
G
T
U
M
M
A
TT
H
ÍA
S
IM
SL
A
N
D
:
• Skeljungur
• Astreaus
• Multiq
• Teymi
• Zetadisplay
• Ticket
• Iceland Express
• Grjóta
• Hekla Travel
• Norðurljós
• Melkot
• Orkan
• INNN
• 365 (varamaður)
• Norðurljós
• Pönnupizzur
• Plastprent (varamaður)
• SPV/SPH
• Háskóli Íslands
MATTHÍAS SITUR Í STJÓRNUM EFTIRTALINNA
FYRIRTÆKJA OG STOFNANA: