Frjáls verslun - 01.11.2006, Page 124
124 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6
Magnús Bergsson. „Það er gott að hafa ákveðna hluti í föstu formi og halda í hefðir.“
„Eftirminnilegustu áramótin voru
líklega áramótin 99/00 en þá bjó
ég í Flórída og við hjónin ákváðum
að prufa að vera ekki á Íslandi
yfir hátíðarnar,“ segir Magnús
Bergsson, framkvæmdastjóri
CCP. „Við héldum að það væri
fínt að flatmaga í sól og sleppa
við stressið sem fylgir hátíðunum
á Íslandi - en þetta eru líklega
ein mestu mistök sem ég hef
gert. Það að sitja úti á verönd í
25 stiga hita, senda upp flugelda
sem varla myndu flokkast undir
ýlur á Íslandi og vita af fjölskyldu
og vinum haldandi upp á alvöru
áramót á Íslandi gerði lítið annað
en það að ég sór þess eið að
ég mundi alltaf vera heima yfir
hátíðarnar. Sá metnaður sem
Íslendingar hafa skilar sér í betri
jólum og áramótum en hægt
að finna annars staðar í heim-
inum. Ég er því ávallt á Íslandi
yfir hátíðarnar og vil helst engar
breytingar á þeim. Það er gott að
hafa ákveðna hluti í föstu formi
og halda í hefðir. Svínasteik, epla-
salat, rauðkál, grænar baunir,
brennur, lélegt áramótaskaup og
góður skammtur af sprengjuefni
eru málið.“
Eftirminnileg áramót:
MIKIL MISTÖK
ÚR EINU Í ANNAÐ
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
Æskumyndin er af Sigurbirni Óla Ágústssyni,
framkvæmdastjóra Einingaverksmiðjunnar, og
var hann tæplega tveggja ára þegar myndin
var tekin. Sigurbjörn var nýbúinn að tína blóm
handa mömmu sinni og var myndin tekin á
grasbala rétt hjá þar sem var verið að byggja
æskuheimilið í Rangárvallasýslu.
Bílar voru aðaláhugamál Sigurbjörns á
þessum árum. „Ég átti nokkra sem þóttu glæsi-
legir.“
Það sem var nokkuð áberandi var að
Sigurbjörn fór stundum í ferðalög sem hann
mátti ekki fara í. „Ég dró þá stundum með mér
vinkonur mínar sem bjuggu í nágrenninu.“
Æskumyndin: