Frjáls verslun - 01.11.2006, Side 128
128 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6
Ragnhildur Ágústsdóttir tók nýverið við stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá Ódýra síma-
félaginu, sem rekur lággjalda-
vörumerkin SKO og BTnet, en
félagið er í eigu Teymis.
„SKO hefur allt frá upphafi
boðið ódýrari GSM þjónustu
og náð góðri fótfestu á íslenska
símamarkaðinum. Viðskipta-
vinir SKO eru orðnir um fimm
þúsund sem verður að teljast
góður árangur á ekki lengri tíma
en níu mánuðum. Sem fram-
kvæmdastjóri ber ég ábyrgð á
rekstrinum og því í nógu að
snúast. Þar sem fyrirtækið er
ekki svo ýkja stórt í sniðum og
hefur aðeins yfir fimm starfs-
mönnum að ráða er starfið mjög
fjölbreytt og spannar allt frá því
að samþykkja reikninga og yfir-
fara uppgjör til þess að sjá um
markaðsmálin. Þetta er krefjandi
starf en það er að sama skapi
mjög spennandi og skemmtilegt.
Ég er nú bara þannig gerð að ég
hef meira gaman af hlutunum ef
þeir reyna svolítið á þolrifin.“
Ragnhildur er 25 ára og í
sambúð með Júlíus Inga Jónssyni
sem einnig starfar sem fram-
kvæmdastjóri. Þau eiga von á
sínu fyrsta barni í vor og í nógu
að snúast í þeim efnum. „Það er
kannski ákveðið aukaálag sem
fylgir því að taka við starfi sem
þessu verandi barnshafandi en
það er bara verkefni sem takast
þarf á við með opnum huga eins
og allt annað. Ég get ekki annað
en litið svo á að ég sé einstaklega
heppin. Það eru mjög spennandi
tímar framundan hjá mér, bæði í
leik og starfi.“
Ragnhildur er viðskiptafræð-
ingur að mennt, útskrifaðist frá
Háskólanum í Reykjavík vorið
2005. Þegar ein önn var eftir
af náminu hóf hún störf sem
markaðsstjóri Skjás eins og starf-
aði þar meðfram námi í nokkra
mánuði og svo áfram að útskrift
lokinni. „Það var mjög spenn-
andi og lærdómsríkt að vinna á
Skjá einum en þegar mér bauðst
að taka þátt í að byggja upp nýtt
fyrirtæki frá grunni gat ég ekki
annað en slegið til. Þetta er eitt-
hvað sem mig hefur alltaf langað
til að gera og svona tækifæri
bjóðast ekki á hverjum degi.“
Ragnhildur segist vera ótta-
legt fiðrildi þegar kemur að
áhugamálum. „Ef ég á að nefna
eitthvað sérstakt þá hef ég mjög
gaman af góðum kvikmyndum
og vel gerðum þáttaröðum og
hef sérstakt dálæti á evrópskum
myndum og er raunar svolítið
gamaldags hvað varðar kvik-
myndasmekk. Ég hef einnig
gaman af íþróttum og útivist
hvers konar, horfi talsvert á fót-
bolta þó að það sé nú kannski
mest kærastanum að þakka.
Ég hef einnig mjög gaman af
golfi sem við höfum verið að
uppgötva undanfarin tvö ár.
Svo er það auðvitað þetta klass-
íska, ferðalög. Framandi slóðir
eru spennandi, en ég hef ekki
síður gaman af því að ferðast um
Ísland. Það er til dæmis alveg
yndisleg tilfinning að vakna í
tjaldi eldsnemma morguns, fersk
eins og blóm í haga, skjögra út
og draga fram útilegustólana.
Ég tók mér síðbúið sumarfrí
í nóvember og fór vestur um
haf til Bandaríkjanna, en þangað
hafði ég aldrei komið áður. Við
dvöldumst í sól og sumaryl í
Flórída í tvær vikur og tvo daga
í New York í bakaleiðinni. New
York er stórbrotin og maður
verður óttalega lítill innan um
þessar risavöxnu byggingar á
Manhattan sem ná svo langt sem
augað eygir.“
Ragnhildur Ágústsdóttir: „Ég get ekki annað en litið svo á að ég sé einstaklega
heppin. Það eru mjög spennandi tímar framundan hjá mér, bæði í leik og starfi.“
framkvæmdastjóri Ódýra símafélagsins
RAGNHILDUR ÁGÚSTSDÓTTIR
FÓLK
TEXTI:
HILMAR KARLSSON
MYNDIR:
GEIR ÓLAFSSON
Nafn: Ragnhildur
Ágústsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
27. 5. 1981.
Foreldrar: Ágúst Þór
Gunnarsson og Hólmfríður
Sigurðardóttir.
Maki: Júlíus Ingi Jónsson.
Börn: Frumburður á leiðinni.
Menntun: B.Sc. gráða í við-
skiptafræði frá Háskólanum í
Reykjavík.