Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.2001, Side 11

Ægir - 01.09.2001, Side 11
11 H A F N A F R A M K V Æ M D I R þýðir að mikið efni þurfti til þess að byggja undir bryggjuna. Um 120 þúsund rúmmetrum var dælt upp nálægt höfninni til þess að nota í hafnarstæðið og sömuleiðis þarf um 50 þúsund rúmmetra af sprengdu kjarnaefni til að gera grjótvörn. Að undanförnu hefur verið unnið að því að reka niður stálþilið við bryggjuna og þar með má segja að verkið verði langt komið. Hins vegar á þá eft- ir að steypa þekju. Þá þarf að stækka aðstöðu fyrir smábáta og ganga frá ýmsum öryggisatriðum, m.a. stigum og lýsingu. Þessar hafnarframkvæmdir í Grundar- firði gjörbreyta aðstöðu sjófar- enda og þar með byggðarlagsins til hins betra. Mikil þörf var á lengri viðlegu fyrir skip og meira athafnarými og þessar fram- kvæmdir mæta þeirri þörf. Húsavík Hafnarframkvæmdir á Húsavík eru þær stærstu og viðamestu á landinu á þessu og næsta ári og er gert ráð fyrir að þær kosti um hálfan milljarð króna. Um er að ræða gerð 300 metra brimvarna- garðs við Böku en í hann er áætl- að að fari um 275 þúsund rúmmetrar af grjóti. Ástæða fyrir þessari viðamiklu framkvæmd er einfaldlega sú mikla ókyrrð sem er inni í höfninni, bæði við norð- ur- og suðurgarð. Það er einungis í smábátahöfninni á Húsavík sem kyrrð uppfyllir þá staðla sem Sigl- ingastofnun vinnur samkvæmt. Frá náttúrunnar hendi er Húsa- víkurhöfn erfið. Hún er mjög opin fyrir haföldunni og á botnin- um er móhella sem gerir það að verkum að mikill kostnaður er við dýpkun hafnarinnar. Vegna mikillar öldu er ljóst að það þarf að byggja brimvarna- garðinn upp með stórgrýti og slíkt efni liggur ekki á lausu á Húsavík, heldur þarf að nálgast það á Máná á Tjörnesi. Nú þegar er búið að flytja töluvert magn af grjóti landleiðina, en ljóst er að næsta sumar verða viðamiklir grjótflutningar frá Máná til Húsa- víkur. Ístak var falið að vinna þetta verk að undangengnu útboði og hafa þeir Ístaksmenn verið að vinna að undanförnu í grjót- námunni á Máná. Mestur kraftur í framkvæmdunum verður hins vegar næsta sumar, enda er gert ráð fyrir að verkinu ljúki haustið 2002. Neskaupstaður Athafnalíf í kringum höfnina í Neskaupstað hefur vaxið ár frá ári í samræmi við aukin umsvif Síld- arvinnslunnar hf. í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski. Þar var mestu magni landað á sl. ári yfir landið eða um 165 þúsund tonn- um. Höfnin í Neskaupstað er afar þröng og því er mikil þörf á að rýmka til. Til þess að það verði unnt þarf þrennskonar aðgerðir. Í fyrsta lagi er ætlunin að lengja svokallaða Togarabryggju og reka niður 70 metra langt stálþil. Í öðru lagi þarf að færa hafnargarð út og ráðast í dýpkunarfram- kvæmdir og í þriðja lagi þarf að byggja skjólgarð norðan hafnar- innar. Heildarkostnaður við þess- ar framkvæmdir er áætlaður á þriðja hundrað milljónir króna. Í ár hefur verið unnið við dýpkun en kraftur verður settur í fram- kvæmdir á næsta ári. Þá er stefnt að því að ljúka dýpkun innan hafnar og ljúka framkvæmdum við Togarabryggjuna. Skjólgarð- urinn utan hafnar verður hins vegar byggður í áföngum m.a. vegna ákveðinna sigvandamála á þessu svæði. Vestmannaeyjar Stóra verkefnið í Vestmannaeyja- höfn er endurnýjun á stálþilum, en stálþil endast þar skemur en annars staðar á landinu vegna þess að tæring er þar meiri en annars staðar. Skýringin á þessu er ekki að fullu ljós, ef til vill er það vegna gosefna. En þessi aukna tæring gerir það að verkum að stálþilin á hafnarsvæðinu þarf að endurnýja tíðar en gengur og ger- ist um aðrar hafnar landsins. Á þessu ári hefur verið unnið að því að reka niður nýtt stálþil utan á gamla stálþilið við Naustham- arsbryggju og nú er verið að und- irbúa að endurnýja stálþil við suð- urkant Friðarhafnarinnar á næsta ári og síðar er gert ráð fyrir að halda áfram við að reka niður ný stálþil við norður-, austur og vest- urkant Friðarhafnarinnar. Í Vest- mannaeyjahöfn eru stálþil samtals tæpir 2 kílómetrar að lengd og af því má sjá að höfnin krefst mikils og stöðugs viðhalds. Grindavík Á undanförnum árum hefur verið lögð mikil áhersla á dýpkun hafn- arinnar og innsiglingarennunnar, en nú er komið að því að byggja tvo skjólgarða bæði vestan og austan innsiglingarinnar. Gert er ráð fyrir að í garðinn vestan inn- siglingarinnar, sem byrjað var á nú í haust, fari um 80 þúsund rúmmetrar af efni en um 100 þús- und rúmmetrar í austari garðinn, en í gerð hans verður ráðist á næsta ári. Við það er miðað að þessum framkvæmdum verði lok- ið haustið 2002. Kostnaður við dýpkun hafnarinnar og innsigl- ingarinnar á árunum 1996 til 1999 og bygging brimvarnagarða á árunum 2001 og 2002 er um einn milljarður króna. Eftir þessar framkvæmdir verður hægt að taka inn stærri og djúpristari skip og innsiglingin verður mun öruggari og viðlega skipa innan hafnar einnig. Séð yfir Vestmannaeyjahöfn. Þar er markvisst verið að vinna að endurbótum hafnarmannvirkja. Það verður mikið um að vera á hafnarsvæð- inu á Húsavík á næsta ári, en þá verður ráðist í að gera sjálf- an brimvarnagarðinn. Birti með leyfi Siglingastofnunar. Mynd: Óskar Þór Halldórsson.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.