Ægir - 01.09.2001, Page 34
34
N E T A G E R Ð
Mikill vöxtur hefur orðið í starf-
semi Netagerðarinnar undanfarin
misseri og eru eigendurnir stað-
ráðnir í að styrkja stöðuna enn
frekar.
Netagerð Friðriks Vilhjálms-
sonar hf. var stofnuð árið 1958 af
Friðriki Vilhjálmssyni netagerðar-
meistara og er því fyrir löngu orð-
ið rótgróið fyrirtæki í veiðarfæra-
framleiðslu og -þjónustu. Núver-
andi húsnæði fyrirtækisins var
byggt árið 1965 og lýsti það mik-
illi framsýni því húsið var mjög
stórt á þeim tíma og er enn í dag.
Árið 1995 keyptu Jón Einar
Marteinsson netagerðarmeistari
og Síldarvinnslan hf í Neskaup-
stað fyrirtækið, en Jón Einar var
þá nýkominn heim frá Noregi þar
sem hann hafði lært sjávarútvegs-
fræði við Sjávarútvegsháskólann í
Tromsö og starfað við veiðarfæra-
rannsóknir og netagerð. Eitt
fyrsta verk nýrra eigenda var að
óska eftir byggingu viðlegukants
við hús Netagerðarinnar, sem tek-
inn var í notkun árið 1997 og til
að nýta þá aðstöðu enn betur var
reist viðbygging við húsið sem
stækkaði vinnslurýmið til muna
og bætti þjónustuna.
„Þetta gerbreytti aðstöðu okkar
til að taka á móti veiðarfærum til
viðgerða. Skipin leggjast að hér
undir húsveggnum og við spólum
nótinni eða trollinu beint inn í
hús á öllum tímum sólarhrings.
Samhliða þessu fjárfestum við í
þremur nýjum blökkum í
vinnslusalinn og síðastliðið sumar
bættum við þremur nýjum við og
höfum þar með endurnýjað allar
blakkir í húsinu. Það er sérstak-
lega ánægjulegt að nýjustu blakk-
irnar voru smíðaðar hér í Nes-
Einu af stærstu netagerðarfyrirtækjum landsins er stýrt frá Neskaupstað:
Verðum að geta þjónað öllum
tegundum veiðarfæra
- segir Jón Einar Marteinsson, framkvæmdastjóri Netagerðar Friðriks Vilhjálmssonar hf.
Hjá Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar er lagður
mikill metnaður í að veita alla þá þjónustu
sem við kemur veiðarfærum. Fyrirtækið er
starfrækt á tveimur stöðum á landinu, höfuð-
stöðvarnar eru í Neskaupstað og á Akureyri er
rekið netaverkstæði eftir sameiningu við Nóta-
stöðina Odda.
Jón Einar Marteinsson,
framkvæmdastjóri
Netagerðar Friðriks
Vilhjálmssonar hf.
Jón Einar er hér í
nótageymslunni í
Neskaupstað.