Ægir - 01.09.2001, Page 37
Japanir borða fisk af
því að hann er bragð-
góður og næringarrík-
ur. Grillaður fiskur er
orðinn uppáhalds-
matur Japana, enn
vinsælli en sushi.
Fiskaren segir frá markaðs-
könnun sem gerð var á Netinu
um fiskneyslu Japana. Niðurstað-
an varð sú að fiskneysla á mann er
þrisvar sinnum meiri í Japan en
Noregi eða alls um 70 kíló.
Bragðgóður og
næringarríkur
Aðalástæða vinsælda fisksins í
Japan er hversu bragðgóður hann
þykir og næringarríkur en margir
af þátttakendum í könnuninni
telja hann of dýran. Fram kom að
stór hluti Japana treystir sér ekki
til að hreinsa fisk.
Meira en 16 þúsund Japana
tóku þátt í könnuninni og um
60% þeirra segjast kaupa fisk í
stórmörkuðum.
Helmingur þeirra sem svöruðu
segjast borða fisk einu sinni til
tvisvar í viku en 41% sagðist
borða fisk þrisvar til fjórum sinn-
um í viku þannig að samkvæmt
könnuninni er fiskur einu sinni til
fjórum sinnum á borðum yfir
90% þeirra sem tóku þátt í könn-
uninni. Það vekur athygli að fisk-
ur er mjög vinsæll matur meðal
ungs fólks.
Fiskur mikilvægastur
Meira en helmingur svarenda
sagðist borða fisk sem aðalrétt
heima en sem aukarétt á veitinga-
húsum.
Japanskir neytendur vilja helst
versla á fiskmörkuðum, sem
einnig selja smærri búðum og
veitingahúsum fisk. Þar fannst
þátttakendum í könnuninni vanta
meiri þekkingu og upplýsingar
um fisk. Margir töldu fiskmark-
aðina vera „staði þar sem óþjóða-
lýður safnast saman.“
Í japönskum könnunum eru
margs konar spurningar og hér
kemur algengt svar við einni
þeirra:
- Konur sem hreinsa fisk eru
flottar en þær sem ekki þora að
hreinsa fisk taka sig illa út.“
Aðeins 0,7% sögðust kaupa fisk
í sérstökum fiskbúðum sam-
kvæmt könnun sem sagt er frá í
Japan-Nytt, sem útflutnings-
nefnd fiskafurða í Noregi gefur
út.
Japanir fara oft út að borða og
helmingur þeirra segist velja fisk
sem aðalrétt. Um 90% þeirra sem
borða á veitingahúsum segjast fá
sér fisk annaðhvort sem aðal- eða
aukarétt.
37
E R L E N T
JJ
L
is
to
2
00
0
Fiskur vinsælli en sushi