Ægir - 01.08.2007, Blaðsíða 20
20
til ódýrari aðferð til að veiða
fisk en að selja ferðamönnum
aðgang að fiskimiðunum. Þeir
greiða fyrir leigu á bát, olíu,
tryggingar og þess háttar svo
útgerðarþátturinn einn og sér
er ákaflega hagkvæmur. Vand-
inn er sá að það er búið að
drekkja okkur í opinberum
þjónustu- og leyfisgjöldum.
Við þurftum að útvega okkur
yfir 350 leyfisbréf til að hefja
þennan rekstur með tilheyr-
andi kostnaði og svo eru öll
almenn gjöld hjá okkur þau
sömu og á öðrum fiskibátum
á Íslandi. Við þurftum bara að
margfalda kostnaðinn með 22
en það er fjöldi bátanna sem
við gerum út á þessar veið-
ar.“
Litlar einingar eru ekki
vænlegar til árangurs
- Nú kom fram í fjölmiðlum á
dögunum að nýir fjárfestar
væru að koma að starfsemi
Hvíldarkletts og að nýtt
hlutafé gæti numið tugum
milljóna. Hvernig gengur
þessi vinna?
„Varðandi nýja fjárfesta
sem eru að koma að félaginu
þá er þeirri vinnu ekki alveg
lokið en hún gengur þó vel.
Töluvert er um áhugasama
aðila og við hvetjum þá, sem
hafa áhuga á þessari starfsemi,
að hafa samband við okkur
og kynna sér þennan nýja
fjárfestingarkost. Við höfum
trú á því að við náum að
skapa eitt stórt og öflugt félag
sem muni ná góðum árangri.
Mín skoðun er sú að litlar ein-
ingar í þessari starfsemi séu
ekki vænlegar til árangurs.
Það stafar einfaldlega af því
að það þarf mikinn fjölda við-
skiptavina bara til þess að ná
að komast á núllpunkt í
rekstrinum. Hagkvæmni fjöld-
ans liggur m.a. í sparnaði í
leiguflugi í stað áætlunarflugs
og fleiri þess háttar þáttum.
Margir hafa komið til okkar til
að kynna sér starfsemina og
við höfum opnað dyrnar fyrir
öllum sem vilja kynna sér
þennan rekstur. Við eigum þó
okkar viðskiptaleyndarmál
eins og flest allir í viðskiptum
og við óttumst ekki að það
spretti upp fyrirtæki um allt
land í samkeppni við okkur.
Það er mjög langsótt ef menn
reikna dæmið til enda áður
en þeir fara í uppbyggingu,“
segir Elías Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Hvíldar-
kletts ehf.
S J Ó S T A N G A V E I Ð I
Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hvíldarkletts ehf. á
Suðureyri, hlaut ásamt Sigrúnu Guðjónsdóttur frá Innn, sér-
staka viðurkenningu fyrir bestu markaðsáætlunina við útskrift
úr svokölluðu ÚH 17 verkefni Útflutningsráðs fyrr í sumar.
Við það tækifæri hafði Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Út-
flutningsráðs og formaður stýrihóps ÚH, sem lýsti vali dóm-
nefndar, m.a. þetta að segja um markaðsáætlun Elíasar sem
gerð var fyrir Sjávarþorpið Suðureyri.
„Í raun gengur verkefnið út á að breyta Súgandafirði í
nokkurskonar „þema park“ þar sem ferðamenn geta komið í
heimsókn og tekið þátt í daglegum störfum þorpsbúa. Veitt
sér í soðið, unnið í frystihúsinu o.s.frv. Íbúarnir verða þannig
á vissan hátt þátttakendur í sínum eigin raunveruleikaþætti.
Skýrslan sem slík er ef til vill ekki sú ítarlegasta sem dóm-
nefnd hefur skoðað, en kynningin í dag (sem fram fór sím-
leiðis og með glærum) og sú staðreynd að verkefnið er kom-
ið á fulla ferð, leiddu fram í dagsljósið einhvern seiðandi
sköpunarkraft og töfrandi viðleitni til að leita nýrra leiða til
að viðhalda mannlífi og athafnalífi í byggð, sem annars á
undir högg að sækja. Okkur finnst þessi viðleitni svo virðing-
arverð að hún hlýtur að verðskulda hér sérstaka viðurkenn-
ingu og hlýtur að verða mörgum öðrum fordæmi.“
Þemagarðurinn Súgandafjörður
Seigla á Akureyri smíðaði þessa sjóstangaveiðibáta fyrir Hvíldarklett sl. vor. Bátarnir hafa reynst prýðilega.