Ægir - 01.08.2007, Side 35
35
huga að afleiðingunum, þótt
verið sé að umbylta lífi og til-
veru mikils fjölda manna í
mjög sérhæfðri stafsstétt.
Mönnum hefur verið boðin
áfallahjálp af minna tilefni.
Það er borðleggjandi að
græðgisvæðingin, sem nú
virðist tröllríða íslensku þjóð-
félagi, á sér því miður öfluga
fulltrúa innan raða íslenskra
útgerðarmanna eins og ann-
ars staðar. Þeir munu spila úr
þeim spilum sem stjórnvöld
hafa nú rétt þeim.“
Sjávarútvegsráðherra getur
mildað höggið
Fulltrúar Félags skipstjórn-
armanna áttu nýverið fund
með Einari K. Guðfinnssyni
sjávarútvegsráðherra og for-
svarsmönnum Hafrannsókna-
stofnunar í kjölfar þeirrar al-
varlegu stöðu sem upp er
komin vegna skerðingar
þorskkvótans. Árni segir að
engin bein loforð hafi verið
gefin á þessum fundi en hann
telji að ráðherra geti mildað
höggið. Til þess séu færar
leiðir.
„Það, sem ég bind hvað
mestar vonir við, er að ráð-
herra geri gangskör að því að
breyta reglum og vinnubrögð-
um sem nú gilda um svoköll-
uð reglugerðarhólf og friðuð
hólf innan lögsögunnar. Ég
held ég fari rétt með að það
er um 17 þúsund fermílna
svæði innan lögsögunnar og
utan 12 mílnanna sem veiðar
eru bannaðar á eða takmark-
aðar með einhverjum hætti. Í
sumum tilvikum vantar algjör-
lega rök fyrir þessum frið-
unaraðgerðum og í öðrum til-
vikum vantar gögn sem rétt-
lætt geta lokanir svæða. Ég vil
að ráðherra taki af skarið og
leyfi veiðar á tegundum eins
og ýsu, ufsa og karfa á svæð-
um sem sum hver hafa verið
lokuð í tugi ára án þess að
spáð hafi verið í þær miklu
umhverfisbreytingar sem átt
hafa sér á fiskimiðunum.
Verði þetta gert þá myndi
það fortakslaust auðvelda
skipstjórnarmönnum að koma
með aukin verðmæti að landi
og milda örlítið áhrifin af nið-
urskurðinum,“ segir Árni en
hann nefnir sem dæmi að á
gríðarstóru svæði fyrir öllu
Suður- og Suðausturlandi, frá
Vestmannaeyjum og austur
að Gerpi, séu togveiðar að-
eins heimilaðar með svoköll-
uðum smáfiskaskiljum.
Sama sé í raun upp á ten-
ingnum með einum eða öðr-
Æ G I S V I Ð T A L I Ð
Mönnum hefur
verið boðin
áfallahjálp af
minna tilefni
- segir Árni Bjarnason, formaður Félags skipstjórnarmanna um áhrif niðurskurðar
þorskkvótans en hann óttast um framtíð íslenskrar sjómannastéttar
Árni Bjarnason segir að verðmyndun á fiski verði efst á baugi í komandi kjarasamningum. Það mál verði að leysa. Hér er skut-
togarinn Júlíus Geirmundsson ÍS að veiðum.