Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Qupperneq 23
tímarit máls og menningar
17
þeim á hönd til að svala fýsn sinni eftir að sitja yfir kosti
livers manns: fyrr en varir hafa þeir náð þvi takmarki að
gera þjóðfélagið allt að einka-vitfirringahæli sínu. Eðli
þessarar óhugnanlegu manntegundar er hálfhlinda og
sjálfhyrgingsháttur þursins, sem Ihsen skilgreinir svo
glöggt í Pétri Gaut. „Vér einir vitum“ er gamalt einkunn-
arorð tegundarinnar, eða eins og það hljóðar á máli Óla
gamla norska: „Mí getur allt po sjóur og po land“. Öll
orðtök, sem eru til þess fallin að sldrskota til fjöldans,
geta þjónað sjálfsdýrkaranum sem grímubúningur í
valdabaráttu hans: kristindómur, þjóðerni, sjálfstæði,
írelsi, mannúð, lýðræði, meira að segja samvinna og
sósíalismi; en allt um það er afskiptasemin og ráðrikið
„hugsjón“ hans og lífsinntak, yfirgangurinn yfirgangs-
ins vegna stefna hans, en hæfileik hefur hann ekki til að
sjá neitt í þessu lífi, utan sitt ímyndaða ágæti. Eftir að
sjálfsdýrkarinn er orðinn nokkurs konar þúkablístra aft-
urhaldsaflanna er allt heilbrigt þjóðlif í hers höndum; í
tima og ótíma þarf hann að trufla allan normalan gang
lifsins, sí-reiðubúinn að fara hamförum gegn eðlilegri
framrás og þrónn jafnt i hinu smáa sem hinu stærra.
En ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir því að manngerð af
þessu tagi takist að ná fótfestu i þjóðfélaginu, og beita
umhverfi sitt bolabrögðum, er það, að þjóðin kringum
hann sé heimskur og leiðitamur skrill, snauður jafnt að
uppeldi sem upplýsingu, firrtur mannlegum metnaði eða
liugmyndum um mannlegan virðuleika. Sú þjóð sem er
þess ekki um komin að skera úr um, hvað sé mönnum
samboðið og hvað þrælum eða skynlausum skepnum, er
í senn hin þæga vagga og mjúka dúnsæng þar sem hinir
villtu sjálfsdýrkarar þrífast bezt; þar hleypur i þá ofvöxt-
ur á skömmum tíma svo þeir minna á tröllaukna hálfvita,
og gína allsvaldandi yfir miljónum manna, án þess að
þekkja annað siðalögmál en sitt eigið deliríum, reiðubún-
ir að koma öllu í bál og brand ef þeir hafa veikan grun
um að höft verði lögð að sjálfsdýrkunaræði þeiiTa. Það
2