Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 31

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 31
JÓN BISKUP ARASON OG SIÐASKIPTIN 189 riði eigi svo .vakurt, sem þeir hafa áður riðið. Því gjör nú hér um, sem ég skrifa. Þetta rita ég til yðar, því þér vitið vel, hver makt okkur liggur nú á um fólkið. Kom nú sem snarast, því mér er sagt, að hans orð kæmi hingað til þeirra. Hér með bífala ég yður guði í vald og hans móður Maríu.“ Það er eftirtektar vert, að Jón talar um það í bréfi þessu, að sér liggi makt á um fólkið. Þau ummæli hans gætu bent til þess, að vinsældir hans hefðu verið í rénun undir lokin. Bréfið lýsir vel framferði mið- aldahöfðingja, sem fer herskildi um héruð og hlilir engum lögum, en býður ofbeldisseggjum vernd sína. Alþýðan varð að þola bæði and- legum og veraldlegum höfðingjum slíkt ofbeldi, eins og fjöldi heimilda einkum frá 15. öld sýna. T álsýnir Arið 1548 berast Jóni biskupi mörg gleðitíðindi, sem tvímælalaust hafa hvatt hann til öruggrar sóknar gegn villukenningum Lúthers hér á landi. Kirkjuþing var kallað saman í Tríent 1545, og Karl V. gat loks snúið sér gegn mótmælendum í Þýzkalandi. Hann gjörsigraði þá árið 1547 í orustunni við Miihlenberg, og hafa margir kaþólskir menn eflaust trúað því þá, að dagar trúvillinganna væru taldir. Keisarinn naut sigursins ekki lengi, þar eð ýmsir furstar Þýzkalands léku mjög tveimur skjöldum í þessum málum. Um svipað leyti og Jóni Arasyni hafa borizt tíðindi af sigrum keisarans, hefur hann spurt lát Gissurar Einarssonar, en áður hefur hann sennilega frétt lát Ilinriks VIII. Eng- landskonungs og Franz I. Frakka konungs, sem voru kaþólskum mönn- um ekki sérlega harmdauðir. Þessir atburðir virtust benda til þess, að þáttaskil væru að verða í gangi heimsmálanna, og hafa þeir hvatt Jón Arason til þess að gæta trúlega þess starfs, sem honum var í vígsl- unni á hendur fengið og varð því ábyrgðarmeira, sem liðsmönnum kaþólsku kirkjunnar fækkaði meir á Norðurlöndum. Ef kaþólska kirkj- an átti eftir að eflast að nýju í þessum löndum, þá gátu þeir Hólafeðg- ar gert sér háar vonir, ef hugur þeirra stóð til meiri upphefðar en þeir höfðu þegar öðlazt. { apríl 1548 gerði Jón biskup för sína suður á land og gaf út opið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.