Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 36
194
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Handtökur og herferðir
Marteinn Einarsson kom frá vígslu vorið 1549 og settist að stóli
sínum. Á alþingi um sumarið lét hann klerka dæina öll embættisverk
Jóns Arasonar ónýt og að engu hafandi utan þau, sem hann fram-
kvæmdi í umboði löglegs ráðs Skálholtskirkju. Dómendur töldu Jón
hafa brotið á móti kirkjulögum og kirkjuskipan Kristjáns III. með
framferði sínu. Þeir Hólafeðgar voru ekki á þinginu, heldur sátu
heima og biðu átekta.
Síðar um sumarið fór Marteinn biskup í yfirreið um Vestfjörðu.
Jón Arason hafði spurnir af ferðum hans og sendi sonu sína, Björn og
Ara, með flokk manna til þess að handtaka hann og nokkra aðra and-
stæðinga sína. Áður en þeir fóru, lét biskup dóm ganga á Þingeyrum
um vantrúar- og villumenn, sem hér í landið hefðu fellt á sig páfans
bann af sínum tilgerningum, og voru slíkir menn dæmdir rétttækir
undir þær skriftir, „sem þeim verða dæmdar að lögum“. Þeir bræður
riðu síðan vestur og náðu biskupi og Árna Arnórssyni í Hítardal, en
Daði Guðmundsson slapp nauðuglega. Voru þeir Árni fluttir til Hóla
og hafðir í varðhaldi.
Eftir þetta virðist Jón biskup hafa reynt að ná sáttum við helztu
andstæðinga sína hér á landi, en árangurslaust. Hann hafði því margs
konar viðbúnað heima á Hólum eins og Ólafur Engilbrektsson á
Steinvíkurhólmi forðum. Hann lét reisa vígi upp frá kirkjunni og kall-
aði það slot. Var þar gerður gröftur mikill og djúpur og veitt að vatni,
og skyldi flytja þangað stykki (fallbyssur) og byssur „sem á einn
skans og ganga af lofti á múr og kirkju“. Hólastaður átti allmikið af
hertygjum um þessar mundir. í skrá um eignir staðarins, þegar Jón
Arason varð biskup, eru talin 6 lagvopn, 4 stríðsaxir, eitt sverð og
herklæði á 40 manns auk nokkurra vondra pansara og járnhatta.
Einnig er sagt, að staðurinn eigi herklæði á ýmsum stöðum. Jón Ara-
son hefur fylgzt með þróun hernaðartækninnar, því að árið 1550 hafði
kirkjunni bætzt 2 fallbyssur keyptar fyrir 16 hundruð í kaupstað, 2
áttungar púðurs, 8 járnlóð, 9 hakabyssur og 7 hálfhakar. Hervæðing
Jóns er einstakur atburður í íslenzkri sögu, því að við höfum engar
heimildir fyrir því, að íslendingar hafi tygjað sig til þess að mæta
erlendum innrásarher í annan tíma.