Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 106

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 106
264 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR vísindin eru sigursæl í framsókn sinni, en hinum erlendu hefur verið ýtt úr vegi. 3. „Félag til útgáfu fornra norrænna bókmennta“ (Samfund til udgi- velse af gammel nordisk litteratur) hefur hagað störfum sínum á þann hátt að það hefur átt hópa félagsmanna í ýmsum löndum, en þeim hef- ur verið sendur svolítill bókaböggull á ári hverju gegn föstu árgjaldi. Að tiltölu við þröngan hag hefur þetta félag komið miklu í verk. En síðustu áratugirnir með gjaldeyrisvandræðum sínum og hömlum og síðan heimsstyrjöld hafa dregið mjög úr starfsemi þess. Það er enn óséð hvort tekst að endurreisa félagið. Meiri háttar útgáfustarfsemi er ekki hægt að skipuleggja á þennan hátt, til þess eru kaupendur alltof fáir. Þannig er þá ástandið í raun og veru. Utgáfustarfsemin á sér ekki stoð í neinni öflugri stofnun né neinni öruggri fjárveitingu sem um munar. Fræðimaður sem getur komið með rit fullbúið til prentunar, mun að öllum líkindum geta fengið það prentað, ef til vill með styrk úr ein- hverjum vísindasjóði (en þar eiga menn á hættu að þurfa að bíða árum saman áður en umsókn sé tekin til greina). En hve margir eru svo vel settir að þeir geti komið með rit fullbúið til prentunar? Langi ungan fræðimann til að gefa eitthvað út, á hverju á hann þá að lifa meðan á verkinu stendur? Árnasafn ræður ekki yfir neinum embættum og aðeins yfir einum styrk. Hann er 1000 kr. á ári, og sú upphæð hefur verið óbreytt síðan 1890, en þá var sannarlega hægt að fá eitthvað fvrir þessa fjárhæð. ¥ Hvernig á þá að skipuleggja starfið í sambandi við Árnasafn? Safnið á að vera vinnustaður, stofnun, í miklu meiri mæli en nú er. Þar þarf að vera starfslið útgefenda á föstum launum. Fjölda þeirra má ræða um, ég mundi stinga upp á fjórum. Þeir ættu að vera full- menntaðir málfræðingar með útgáfutækni að sérgrein. Útgáfur hand- rita ætti að vera ævistarf þessara vísindamanna. Auk þess ættu að vera til styrkir handa ungum fræðimönnum sem vildu starfa í safninu um skemmri tíma. Með slíku starfsliði væri hægt að tryggja skipulagða útgáfustarfsemi sem héldi jafnt og þétt áfram. Skyldum ritum væri hægt að skipa saman
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.