Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Blaðsíða 13

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Blaðsíða 13
LYGARAR TIL LEIGU milljóna; atómstríð, sem menn álitu að engri vöm yrði beitt gegn, er látið líta út sem skelfing er menn verði að horfast í augu við, og hverjum og einum er talin trú um að með dálítilli heppni og útsjónarsemi geti hann komizt lifandi af“. Með öðrum orðum: áróður- inn um atómbyrgin er liður í sálrænni hervæðingu amerísku þjóðarinnar, og honum er ekki sízt haldið að fólki af blöðum repúblíkana, segir Kingsley Martin, því ritstjórum þeirra finnst núverandi stjórn of lin í andkommúnismanum. En um sannleiksgildi þeirra fullyrðinga sem áróðurinn byggist á hefur Kingsley Martin þetta að segja: Newsweek, sem er heiðarlegra en sumir keppinautar þess, vitnar í skýrslu opinberrar stjórnarnefndar, sem varar lesendur við ósönnum auglýsingum um gagnslausar tilfœringar og dýr byrgi, er vœru aðeins líkleg til að verða grafir íbúanna. Aðrir sérfrœðingar benda á að byrgin mundu aðeins verja menn gegn geislavirku úrfalli, þar sem raunin yrði sú að menn mundu bíða bana af þrýstingi, og þó framar öllu af „eldstormi“ sem mundi eyða óllu súrefni yfir þeim svœðum þar sem gert er ráð fyrir að fólk mundi lija þœgilegu og skemmtilegu lífi í byrgjunum sínum. Einn af meðlimum vísindamannanefndarinnar sem fjallar um geislavirkni er sagður hafa lýst yfir því að „allir sem lendi í eldstorminum muni farast. Byrgi eru mjög lítilsverð hugmynd". Maður sem er í aðstöðu til að þekkja nákvœmlega skoðanir vísindamanna segir mér að hið algenga álit um fullkomna eyðingu á 16 kílómetra svœði í allar áttir út frá sprengi- staðnum sé hlœgileg bjartsýni, vegna þess að sprengja sem eyðir óllu á því svœði með þrýstingi komi af stað eldstormi sem eyðir hverju tangri og tötri í hring með 320 kílómetra radíus. Hugleiðið þetta eitt andartak, og þér munuð sennilega komast að raun um að áróðurinn sem hafður er í frammi til að telja Ameríkumönnum trú um að aðeins lítill hluti þeirra muni deyja í atómstyrjöld, er svo samvizkulaus, að hvorugu megin við járn- tjaldið hefur samvizkulausari áróðri nokkurntíma verið beitt. Berum nú saman úrskurð sérfræðinganna sem íslenzk yfirvöld kölluðu á vettvang við lýsingu hins brezka blaðamanns á aðferðum og markmiðum ameríska áróðursins fyrir almannavörnum og atómbyrgjum. Við þann samanburð kemur f ljós: Að borgaravamir íslenzkra yfirvalda munu ekki geta varið borgarana í atómstríði, og er ekki heldur ætlað að gera það. Að þeim er ætlað að sætta íslendinga, á lognum forsendum, við það hlutverk sem þeim er fyrirskipað í vörnum hins Frjálsa heims: hlutverk skotmarksins; — og slæva andstöðu þjóðarinnar gegn fyrirætlunum stjórnarvaldanna um auknar „varnir íslands". Að Holtermann hershöfðingi og dr. Toftemark eru ótíndir lygarar sem íslenzka ríkis- stjómin tók á leigu í nokkra daga, gegn því að þeir gæfu henni vottorð um að stríðs- bandalagsaðild íslenzka ríkisins jafngilti ekki glæpsamlegu tilræði við líf íslenzku þjóð- arinnar. Það er aumt hlutskipti íslenzkra valdhafa, að þurfa að leigja sér slíka sérfræðinga, og undarlegt hlutverk sem „bræðraþjóðir" vorar á Norðurlöndum hafa tekið að sér í íslenzk- um stjórnmálum. S.D. 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.