Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Blaðsíða 75

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Blaðsíða 75
VÖRN SOVÉTRÍKJANNA 1941 um. Með samþykktinni í Vín, 31. ágúst, ákváðu þeir ný landamæri Rúmeníu, af- hentu Ungverjalandi Transilvaníu, Búlgaría fékk Dobrósíu. Jafnframt tók Þýzkaland ábyrgð á þeim löndum, sem Rúmenía hélt, til að setja undir allan leka með útbreiðslu áhrifasvæða Sovétríkjanna á Balkanskaga. Berlín vildi, að það yrði öllum ljóst, að sunnanvið Prut, hin nýju landamæri Rúss- lands og Rúmeníu, tæki við áhrifasvæði Þjóðverja. Vernd Þjóðverja á Rúmeníu vakti ótta- blandna undrun í Moskvu. Ráðamenn Sovétríkjanna tilkynntu sendiráði Þýzka- lands að nauðsyn bæri til að skilgreina ljóslega stefnu þeirra í Austurevrópu til að forðast frekari „misskilning". Andrej Visinskí, sem orðinn var aðstoðarutanríkis- ráðherra, tilkynnti Schulenburg þann 11. september, að Sovétríkin yrðu að vera með í ráðum framvegis þegar rædd yrðu vanda- málin við Dóná, þar eð þau hefðu orðið valdaaðili við ána þegar þau tóku Bessara- bíu. Þýzka stjórnin lét tilleiðast að gera nokkrar undantekningar. Innrásin í Sovét- ríkin átti ekki að hefjast fyrr en um vorið 1941 og Ilitler taldi ráðlegt að vekja ekki um of ugg stjórnarinnar í Moskvu. Þess- vegna gerðist það samtímis, fyrstu dagana í október, að þýzkar hersveitir héldu inní Rúmeníu, og Berlín féllst á fund með Sovét- ríkjunum, sem fulltrúum Ítalíu og Rúm- eníu var einnig boðið að sitja. Fundurinn átti að koma nýrri skipan á siglingar um Dóná, einkum Dónárósa, sem fram til þessa höfðu verið ákvarðaðar af alþóðalögum. Fundurinn hófst í Búkarest 28. október. Andstaðan varð strax augljós milli krafa Þjóðverja og tillagna Sovétríkjanna, sem reyndu að koma Dónárósum undir sérlegt eftirlit Rússa og meina Þjóðverjum beinan aðgang að Svartahafinu. Eftir hverja fram- lenginguna á fætur annarri var fundinum endanlega slitið 21. desember án þess nokk- uð samkomulag hefði náðst. Schulenburg kom aftur til Moskvu 15. október. Þar fann hann að ástandið var orðið enn alvarlegra. Sovétríkin höfðu dregið verulega úr afgreiðslu þeirra hrá- efnabirgða, sem þeir voru skuldbundnir til að sjá Þjóðverjum fyrir, til þess hafði ekki verið gripið áður. Þetta gerði Þjóðverjum erfitt fyrir um aðdrætti til iðnaðar síns. Schulenburg, sem enn var sannfærður um að einföld útskýring mundi „upplýsa“ ástandið, kom því til leiðar, að Molotov, sem var þá forseti Þjóðernisráðsins (for- sætisráðherra), var boðið til Berlínar. Uggurinn var engu minni í Moskvu. Full- trúar erlendra ríkja í borginni tóku eftir því, að dagblöðin réru stöðugt á ættjarðar- ást og baráttuvilja þjóðarinnar. Við her- sýninguna á Rauðatorgi á byltingarafmæl- inu, 7. nóvember, tilkynnti Timosjenko marskálkur í dagskipan sinni: „Styrjöld auðvaldsríkjanna breiðist út og dregst á langinn, hún nálgast landamæri vor, hún ógnar landsvæði voru, hún getur orðið ógn- un við föðurland vort, Sovétríkin." Að kvöldi þess 10. nóvember lagði Molo- tov af stað til Berlínar. Hann kom aftur til Moskvu um miðnætti þann 15. Á báða bóga var látin í ljós mikil ánægja. I raun og veru var árangurinn enginn. Engin samkomu- lagsleið var fær um það sem eitt skipti máli í viðræðunum, afmörkun „áhrifasvæðanna". Heila klukkustund rifust Hitler og Molo- tov um Finnland, sem hvor viðræðuaðilinn um sig grunaði hinn um að vilja innlima. Deilan um Hellusund var sérstaklega leidd í tal og Hitler hafði þvertekið fyrir það, að Sovétríkin kæmu sér fyrir í Búlg- aríu og þaðanafsíður á sundinu sjálfu. Molotov var ósveigjanlegur og minnti á hefðbundin ítök Rússa á þessu svæði, þó með hægð, sem espaði Þjóðverjana. Hitler reyndi að fá hann ofanaf þessu með „stór- tímarit máls oc mennincar 65 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.