Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Blaðsíða 71

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Blaðsíða 71
Á GRÆNLANDSMIÐUM — Ætli þeir eigi um annað að velja, segir bræðslumaðurinn. — Það er eins og það séu ýmsar hliðar á þessari blessaðri tuttugustu öld, segir miðaldra kýmileitur háseti og rær sér í sætinu og spennir greipar íram á borðið. — Þeir fara víst margir til svona á hverri vertíð, hefur maður heyrt, sagði bræðslumaðurinn. Þessi var heppinn. — Skrítið lag á bátum, sagði ungi hásetinn. — Hvað skyldi nú verða um greyið? — Loftskeytamaðurinn er að reyna að ná sambandi við þá. Nú kom litli maðurinn aftur inn í borðsalinn klæddur þessum íslenzka fatn- aði, og heldur var þetta stórsniðið á hann, peysan hlykkjaðist niður um tálg- aðan kroppinn, eins og belgur á dragspili, en hann hafði gyrt buxnaskálmarn- ar ofan í sjósokkana, eins og íslendingarnir og rennt greiðu gegnum blásvart hárið. Hann brosti og settist, og nú þegar hann hafði ekki matinn lengur að föndra við, varð hann órór og vandræðalegur og lét augun hvarfla um allt og þeim fannst hann ekki hafa neitt fast tillit, en bræðslumaðurinn sagði að Suður- landabúar væru svona. Þetta væri þeirra einkenni. Og þeir brutu heilann um hvaðan hann væri. Þeir voru búnir að gleyma hvað staðurinn hét, en vildu ekki gera sig að þeim rötum að spyrja um það í annað sinn. Og bræðslumað- urinn sagði að hann væri portúgali eða spánverji, en það mætti einu gilda því Spánn og Portúgal væri eiginlega sama landið. — Hann sagðist ekki vera frá Lissabon, sagði ungi hásetinn. — Já, við heyrðum það nú líka, sögðu þeir hinir. — Það eru til fleiri borgir en Lissabon, sagði bræðslumaðurinn og var að reyna að ná framburði litla mannsins á þessu dularfulla suðræna borgarheiti. — Þeir eiga líka togara, sagði kímileiti maðurinn. Þeir hafa stundum kom- ið heim — stórir togarar. Stærri en þeir stærstu okkar. — Það er eins og þeir eigi sitt af hverju tagi þarna, sagði bræðslumaðurinn og brosti uppörvandi til útlendingsins. — No comprendo, sagði litli maðurinn, brosti afsakandi og yppti öxlum. Þeir gáfu honum að reykja og fylgdust forvitnislega með sérhverri hreyf- ingu hans. — Hvað skyldi þeim vera borgað fyrir þetta, sagði ungi hásetinn. — Það er áreiðanlega ekki mikið, sagði bræðslumaðurinn. En það virðist vera séð fyrir því að þeir hafi nægar birgðir af rauðvíni. — Hvernig? sagði ungi hásetinn. 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.