Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Blaðsíða 24

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Blaðsíða 24
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR andi brimskafl, að sennilega mundi hún liðast sundur á skuldaskerjum, hvernig sem reynt væri að spyrna við fótum. Þó sögðust þeir vilja benda þing- heimi á þá augljósu staðreynd, að horfurnar gætu breytzt mjög til batnaðar, ef sparnaðartillögur þeirra yrðu samþykktar, útgjöld ríkissjóðs lækkuð um þriðjung og skattpíningarstefnan kveðin niður í eitt skifti fyrir öll. Síðan færðu þeir sönnur á mál sitt, þuldu tölur, vitnuðu í skýrslur. Eg var ekki búinn að gegna embætti mínu lengi, þegar skyndilega hvessti í neðri deild. Voldugur ræðugarpur í svörtum jakka og röndóttum buxum, fattur og handsmár, bar þungar sakir á báða stjórnarflokkana, þrumaði og hvíslaði til skiftis, talaði ýmist reiður eða klökkur um þjóðarskútuna, brim- skaflinn og nauðsyn þess að spyrna við fótum, slá skjaldborg um krónuna, sjálft fjöreggið. Annar ræðugarpur, einnig í svörtum jakka og röndóttum bux- um, spratt úr sæti sínu um leið og hinn þagnaði, hvessti á hann augun og mælti til hans skjótum orðum, að honum færist ekki að tala um fjöreggið, eða hefði hann ekki neytt aðstöðu sinnar í banka þjóðarskútunnar til að moka miljónum og aftur miljónum í útgerðarbrask sitt og fjölskyldu sinnar, sólund- að sparifé landsmanna eins og hann ætti það sjálfur, reist skrauthýsi, keypt veiðijarðir? Auk þess væri ærin ástæða til að rannsaka viðskiftahætti þessar- ar skuldugu fjölskyldu, gj aldeyrisskil hennar og einokunarbrölt, — eða hvers- vegna hefði hún ekki hnekkt þrálátum orðrómi um kynlegt samband við brezka lifrarkónga og undarlegt dálæti á kaupmönnum þeim í Suðurlöndum, sem buðu lægra verð en aðrir fyrir saltfisk þjóðarskútunnar? Hversvegna heimtaði ekki fjölskyldan rannsókn, ef enginn fótur væri fyrir því, að hún safnaði stóreignum erlendis? Sá voldugi lét sér hvergi bregða meðan ræðan snerist um miljónaskuldir, sukk og bílífi, skrauthýsi og jarðakaup; en jafnskjótt og andstæðingur hans veik að útflutningsmálum, minntist á lifur og saltfisk, varð hann rauður sem rósa, greip fram í fyrir honum og kallaði hann óþinglegum nöfnum, unz for- seti tók þann kost að hringja bjöllunni án afláts. Þögnin í salnum var svo al- ger, að vel hefði mátt heyra tóbakskorn detta úr nefi hagyrðings, þegar sá voldugi reis aftur úr sæti og hóf varnarræðu sína, reiður að vísu, en fattur og styrkur, búinn að ná fullkomnu valdi á rómi og svipbrigðum. Þetta væru þakkirnar, sagði hann beisklega og starði drykklanga stund á suma foringja stjórnarliðsins, eins og hann væri að skoða pöddur, en renndi síðan augum upp á áheyrendapallana: Svona lygar og rógburð yrðu þeir að þola, sem drægju björg í bú þjóðarskútunnar á erfiðum tímum, kæmu í veg fyrir að sjávarútvegur liði undir lok, öfluðu gjaldeyris, veittu fjölda manns atvinnu, 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.