Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Page 14

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Page 14
HVER GLEYMDI AÐ GLEÐJA AFMÆLISBARNIÐ? T-|EGAR háskóli vor varÓ hálfrar aldar gamall á síðastliðnu hausti bárust honum gjafir víðs vegar að, erlendar og innlendar. Tvö stórveldi heimsins minntust hans rausnar- lega, Reykjavíkurbær gaf honum dýrmætar lóðir, ríkisstjórn íslands var að vísu naum, svo sem eðlilegt er í allri viðreisninni, en sýndi samt lit, stúdentar og menntamenn ís- lenzkir gáfu fagurt listaverk, og eru þeir þó ekki of vel haldnir af þessa heims gæðum. Ein gjöf vakti þó sérstaka athygli: norskur auðmaður, sem vildi ekki láta nafns síns getið, gaf háskólanum 2 milljónir króna. Það er þessi síðasttalda gjöf, er vekur mann til nokk- urra hugleiðinga um háskólaafmælið. Og þær hugleiðingar hljóta að hefjast á þessari spurningu: Er engin borgarastétt til á íslandi? Ef hún er til, hvar var hún þá stödd á afmælisdegi háskólans? Hví var hún ekki í hópi þeirra aðila, innlendra og erlendra, er komu til háskólans dona ferentes? Hvers vegna skartaði íslenzk auðborgarastétt með fjarveru sinni, þegar æðsta menntastofnun íslands hélt hátíðlegt fimmtíu ára afmæli sitt? Olli þessu nízka, féleysi eða hugsunarleysi? Maður hlýtur að spyrja, kannski verður einhver til að svara. Ég býst við að fleiri en ég hafi roðnað fyrir íslands hönd, er liinn ókenndi norski maður færði háskólanum þessa stórmannlegu gjöf, en engir íslenzkir auðborgarar né samtök þeirra minntust hins fátæka menntaseturs. Þess hefur samt ekki orðið vart, að borgara- stétt okkar hafi fundið til blygðunar vegna þessara veizluspjalla. Að minnsta kosti hefur ekki borið á því opinberlega. Hún er jafn frökk eftir sem áður. Kannski hefur hún orðið dálítið frekari, ef nokkuð er. Enn sem fyrr ætlar þessi stétt að lifa samkvæmt öfugum málshætti örlátrar þjóðar: sælla er að þiggja en gefa! Því margar og miklar gjafir hafa íslenzkri borgarastétt verið gefnar, og hún fær aldrei nóg. Henni hefur verið gefið vald til að klippa krónuna okkar að vild sinni. Tollar eru lækkaðir henni til hagsbóta svo að hún þurfi ekki að falla fyrir þeirri freistni að smygla vörum til landsins. Og í ráði er að lækka á henni skattana svo að hún þurfi ekki að fremja skattsvik af ofmiklu blygðunarleysi. Þetta allt fær hún aukreitis, til viðbótar við leyfi til að arðræna hvem vinnandi mann í landinu. „Góð er tíund vor, herra!“ Það er sem sagt reynt að hlynna jafnt að fjárhag hennar sem fjármálasiðgæði, með gjöfum og fríðindum. En hún telur sér ekki skylt að gjalda gjafimar neinu. Hin furðulega gleymska íslenzkrar borgarastéttar á afmælisdegi háskólans lýsir henni betur en flest annað: áhugaleysi hennar og fullkomnu rænuleysi í menningarlegum efnum. Það er því líkast sem hún telji sig engu skipta það hlutverk, sem háskóla okkar er á hendur falið. Vísindaleg viðfangsefni æðstu menntastofnunar landsins eru henni tóm „tjara“, svo talað sé á mállýzku æskulýðsins. í þeim efnum virðist stéttin hvorki skeyta um skömm né heiður. Þó skortir hana sosum ekki merkilegheitin. Oftar en ekki leggur þessi stétt sig að jöfnu við „atvinnuvegina" og er þá mjög ábyrgðarfull. En hún virðist ekki hafa hugmynd um, að til sé Atvinnudeild við háskólann, sem þurfi að styrkja og efla. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er alveg grunlaus um tilveru Fiskideildar háskólans. Lands- samband íslenzkra útgerðarmanna er einnig saklaust af þeirri vitneskju. Félag íslenzkra stórkaupmanna virðist ekki heldur kannast við, að til sé Viðskiptadeild háskólans, svo að eitthvað sé nefnt. 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.