Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Side 82

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Side 82
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR tillögur yfirstjómar landhersins um sókn- ina til Moskvu. Hitler varð æfur, bölvaði Brauchitsch og sagði að ákvörðun sín væri þegar tekin, markmiðið væri Kiev, Ukraína og Leníngrað. Þann 21. ágúst kunngjörði hann herforingjunum fyrirskipanir sínar. Sóknin var tekin upp aftur fjórum dögum síðar. En nú leið að lokum hins rússneska sumars. Stríðið var búið að standa í tvo mánuði. Rauði herinn var enn ekki að velli lagður. Síður en svo, hann barðist af meiri ákafa og einbeitni en nokkru sinni fyrr. Brynvagnar Guderians réðust til suðurs, í átt til Úkraínu. Þeir snéru baki við Moskvu. Sókn þýzka hersins á Okraínuvíglínunni hófst 25. ágúst 1941, í dögun. Sóknin gekk einstaklega seint og erfiðlega, jafnvel þar sem bryndrekasveitir Guderians voru að verki. Rússar linntu ekki gagnárásunum og komu sífellt með nýjan liðsauka. Uppfrá því gerði Blumenritt hershöfðingi sér grein fyrir því að: „aftur og aftur er beitt fram nýjum, óþreyttum og vel búnum hersveitum Sovétríkjanna, sem leyniþjónusta okkar hafði ekki einu sinni grun um að væru til.“ Hinn 19. september féll Kiev í hendur Þjóðverjum. Þó mikilvægir sovézkir her- flokkar hefðu verið umkringdir milli höfuð- borgar Okraínu og Karkov var mótstaða rauða hersins samt ekki brotin á bak aftur. Jarðsprengjusvæðin töfðu framgang bryn- vagnanna. Tangarsókninni að Kiev, sem í áætlunum Hitlers átti að leggja í rúst allan rússneskan herafla á suðurvíglínunni lauk ekki fyrr en 26. september. Tala handtek- inna var 665.000 manns. Samt hafði þessi nýi sigur ekki leyst meginvanda yfirstjórn- arinnar þýzku: rauði herinn var enn ekki úr sögunni. Vissulega var orrustan í Úkra- ínu og taka Kiev mikill taktískur sigur fyr- ir þýzka herinn, en Guderian gerir þá at- hugasemd að það: „sé vafasamt að þessi taktíski sigur hafi miklar herfræðilegar af- leiðingar". Það var alveg komið að septem- berlokum. Haustrigningamar voru byrjað- ar. Sveitir, vegir og troðningar flutu í leðju. Vélahersveitir Þjóðverja sátu fastar. Miðherinn undir stjórn von Bocks tók aftur upp sóknina 2. október. Þann 8. októ- ber tókst að brjóta upp víglínu Rússa og borgin Orel, skipulagsmiðstöðin utan Moskvu féll í hendur Þjóðverjum. Þennan dag kallaði Otto Dietrich, blaðafulltrúi Kanslaraskrifstofunnar, fréttaritara er- lendra blaða á sinn fund í Berlín. Hann skýrði þeim frá því að: „herir Timosjenkos marskálks væru innilokaðir í stálkjöftum tveggja tangarsókna í nágrenni við Moskvu“, að „nýlega hefði brostið flótti í lið Budjennís marskálks", að „hinar tíu herdeildir Vorosjílovs marskálks væru nú umkringdar í nágrenni Leníngrað". Niður- staða hans var: „Hernaðarlega er tilveru Rússa lokið“. En leiðin til Moskvu lá samt ekki opin fyrir þýzka hernum. Frá 2. til 20. október stóðu tvær miklar umkringingarorrustur um Vjasma og Brjansk. 650.000 fangar eru teknir af Rússum og um það bil 1200 vagn- ar. Samt nægir þessi feykilegi ósigur ekki til að brjóta niður mótstöðuna. Blumenritt hershöfðingi segir ennfremur: „Nú þegar Moskva er svo til í augsýn byrjar að draga kjarkinn bæði úr yfirmönnum og óbreytt- um hermönnum. Andspyrna Rússanna harðnar og bardagarnir verða grimmilegri ___Margar herdeildir okkar eru ekki orðn- ar nema 60 til 70 manns. Veturinn nálgast óðfluga og enn hafa okkur ekki borizt hlý föt ... Á bakvið víglínuna, skógana og fenin hópast skæruliðarnir saman og fyrir þátttöku þeirra finnum við óspart. Birgða- flutningasveitir okkar verða sífellt fyrir árásum." í byrjun nóvember skrifaði Gude- rian í bréfi: „Það gengur sannarlega ekki vel fyrir okkur því fjandmaðurinn vinnur tíma og við erum alltaf að nálgast veturinn með áform okkar. Ég er altekinn djúpri 72
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.