Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Page 12

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Page 12
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR hendur að breyta heiminum. En í kvöld erum við heimspekingar, aðeins and- artak, og stelumst til að spegla okkur í tímanum og vatninu. Þessi orð eru aðeins til að minna okkur á hvar við erum stödd í kvöld, á nýjum stað, við vatn, á hæð, og með útsýn á tvo vegu. Það fer ekki hjá því er menn hafa starfað við fyrirtæki samfellt í aldar- fjórðung að menn verði bundnir því öllum taugum, og það verður eins og flötur sem allt speglast í á himni og jörðu. Og hvað verðskuldar fremur slíkt sjónarmið en bókmenntafélag, og hefur Mál og menning ekki að sönnu verið spegilflölur? Við þurfum ekki annað en renna samtímis augum yfir skáldin og árin, og yfir bækurnar sem við höfum gefið út, og sjá hvernig allt skín í einu ljósi, heimur og hugur, og hvernig þræðirnir liggj a frá bókunum um all- an heim, og hvernig þær hafa fært okkur löndin og aldirnar og samtímann á einn stað, inn í hug okkar sjálfra til að víkka hann og þenja og gefa okkur þann skilning sem varð leiðarljós okkar og þann eld í brjóstið sem við höfum nærzt á og gefið hverju verki sem við höfum unnið líf og lit. Rennum aug- unum snöggvast yfir þessar bækur allar götur frá Rauðum pennum, sem hrugðu blysinu á loft, eftir árgöngum Tímaritsins og yfir til Byltingarinnar á Kúbu. Og kallið sem snöggvast í hugann bækur eins og Undir ráðstjórn, Drekinn skiptir ham, Andlit Asíu, Undur veraldar og ævisögur Gorkis og Andersen-Nexö og aðrar sem skapa nýjan sjóndeildarhring, að ekki sé minnt á skáldsögurnar allar, Móðurina, Austanvinda og vestan, Vopnin kvödd, Jó- hann Kristófer, Berfætlinga, Svertingjadreng, Fjallaþorpið, Þrúgur reiðinn- ar, Þögn hafsins, Dittu, Ástina og dauðann við hafið, þessa kristalla úr þjóða- djúpunum sem opna hugskotið fyrir fegurðinni, um leið og þeir loga eins og eldar upp af þjáningum mannlífsins og kallast á land úr landi. Og lítið af bókunum á sjálfa atburðina, hvernig þetta félag okkar hefur hrærzt með hræringum aldarfjórðungsins, hvernig stormar samtíðarinnar hafa vaggað þessari fleytu eða sjórinn risið eins og holskefla undir kjölinn: svo er allt hvað öðru nálægt í heiminum og hvað öðru tengt og eins og sam- fléttað. Jónas frá IJriflu kallaði Mál og menningu forlag Stalíns á íslandi og það er ekki ókunnugt hve nafn okkar hefur öll þessi ár verið tengt Sovétríkj- unum, og ekki að ófyrirsynju, því að inestur brimgnýr síðustu áratuga hefur hamazt og brotnað við þeirra strendur, því að þar sáu menn í hrifningu eða skelfingu rísa þann nýja heim sem koma skal samkvæmt lögmálinu og þau hófu á loft þann fána sem verkalýður heimsins og síðar þjóðfrelsishreyfingar í öllum álfum bera fram í ýmsum litum, svo að hvar í veröldu sem atburðir gerast hefur allt lirærzt af sama grunni. Og hjörtun hafa titrað í sársauka eða 2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.