Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Blaðsíða 40

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Blaðsíða 40
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR En hvað gerir þá hið opinbera til þess að vekja almennan áhuga fyrir listum, svo þær gætu dafnað í frjáls- um viðskiptum sínuin við borgar- ana? í engum æðri skóla landsins, ekki einusinni þeim sem á að mennta kennarastéttina, er sagt aukatekið orð um þessi efni. Menn geta útskrif- azt stúdentar, kennarar, guðfræðing- ar, án þess að hafa meiri hugmynd um hvað er að gerast í listum okkar og veraldar en hann langafi okkar í gröf sinni, dauður fyrir áttatíu árum. Um tíma var komið á fót starfsemi sem hét Listkynning í skólum og bætti úr þessu á margan hátt. En nú er það fyrirtæki dault, og var enda aldrei við mjög góða heilsu. En hvað um Listasafn Islands? Nú hafa löngu verið sett um það ný lög og starfsvett- vangur þess ákveðinn. Samt sem áð- ur er það enn sem fyrr eins og dauðs manns gröf, nema hvað kona situr við innganginn og gerir strik á blað í hvert sinn sem einhver villist þang- að inn. Safnið gengst aldrei fyrir neinskonar kynningu, með fyrirlestr- um eða kvikmyndum um listir, það efnir aldrei til erlendra sýninga, gef- ur ekkert út, ekki einu sinni leiðsögu- bækling um myndir þær sem uppi hanga, -— það hvetur ekki einu sinni fólk til þess að skoða safnið, og er þá tólfunum sannarlega kastað! Erlend listasöfn hafa fyrir löngu vaknað til þess veruleika, að þau verði að keppa við allskonar önnur aðdráttaröfl í þjóðlífinu, og þau eru orðin lifandi starfsstofnanir, þar sem ávallt er eitt- hvað nýtt og forvitnilegt að gerast, enda eiga mörg þeirra nú margfalt meiri áhuga og aðsókn að fagna en dæmi voru til um listasöfn áður. Dauði og niðurlæging listasafns okk- ar mun vera nálega einsdæmi í álf- unni. Með þessu er ég ekki sérstak- lega að ásaka forstöðumann þess, enda býst ég við að fáar ríkisstofnan- ir drægju langt í starfi sínu með eins manns — segi og skrifa eins manns — starfsliði. Meðan svo stendur á ís- lenzk myndlistarvakning einskis að vænta úr þeirri átt. En hvað þá um höfuðstaðinn sjálf- an, Reykjavíkuróorg, eins og nú mun þegnskylda að kalla þessa forklúðr- uðu byggð hér á nesinu? Og þar verða svörin því miður enn styttri, þar er jafnvel ekki um misheppn- aðar tilraunir að ræða. Það væri hóf- legt að ætla, að horgaryfirvöldunum þætti skylda sín að sjá íbúunum fyr- ir einhverri aðstöðu til þess að kynn- ast þeirri list, sem hefur þó sprottið upp og þróazt í þessum bæ. En nei, svo langt nær nú menningaráhuginn ekki. Listamenn urðu sjálfir að reisa sýningarhús, og því aðeins fékkst dá- lítið bankalán, að einn þeirra veð- setti fyrir því húseign sína. Og nú grotnar þessi skáli niður, ár frá ári, og að því sýnist við algjöra velþókn- un borgaryfirvaldanna. Fyrir nokkrum árum var komið 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.