Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Blaðsíða 53

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Blaðsíða 53
SVIPMÓT SPÁNAR Nei, ég sagði nú svona. Ég veit það ekki. En áreiðanlega er það ekki verra en hjá lýðveldisstjórninni, svo er manni sagt. Ég hef heyrt, að þeir hafi raðað öllum, þeir rauðu, mönnum á Aðalgötunni og skotið þá, sem ekki höfðu sigg í lófa. Þetta átti að hafa gerzt í þorpi ekki langt héðan. Sjálfsagt er þetta vit- leysa, þetta á að hafa gerzt alls staðar í þorpi „ekki langt héðan“. En engu að síður held ég, að bezt sé að hafa tuttugu ára frið Francos, eins og það er kallað. Annars erum við yfirleitt konungssinnar. Fólki líður yfirleitt betur hér en annars staðar? spyr ég. Já, hér í Kastilíu eru menn ákaflega stoltir, ekki eins og í suðrinu. Hérna í nágrenninu gerist öll saga Spánar. Þú kannast við Hann Cid minn, elzta ljóð Spánar? Cid fór hér um, þú átt eftir að skoða hliðið. Hérna geturðu séð margar rómanskar kirkjur og veggmálverkin hjá Tuddum eru fræg. Hvar sem þú ferð á Spáni rekst þú alstaðar á sögu, bentu blindandi á kortið og þar hefur áreiðanlega eitthvað gerzt undir fingurgómnum. Strákarnir í skólanum segja, að hér lifi engir vel nema prestar, nautabanar og knattspyrnumenn, en . .. Jæja, nú flautar pabbi. Ég var að veiða með honum krabba í dag upp við Duero og í kvöld á ég að fá að sofa heima. Heldurðu að það sé lúxus. Góða nótt. Ég fer niður og hitti gistihúss-eigandann niðri í anddyrinu. Jæja, segir hann. Þú ert ekki Ameríkani. Nei, segi ég. Því miður. Ég var nefnilega í tíu ár í Ameríku og lærði ekki stakt orð í ensku. Vel gert. Við héldum okkur alltaf saman, Spánverjarnir. Ég lærði að segja sápa — soap — það var líka nóg. Ég man enn það orð. Samt er það vitlaust orð fyrir sápu. Annars er gott að búa í Ameríku, bara að engir Ameríkanar væru þar, heldur Spánverjar. Ég hlæ. Þú hlærð, segir hann og ekur sér til af ánægju. Á ég að segja þér, hvað við hérna segjum um ykkur ferðamennina? Það yrði gaman, segi ég. Svona er það í réttri röð: Fyrst kemur Bretinn hingað og vill að allt sé eins og það er. Síðan kemur Þjóðverjinn og tekur öllu eins og það er, uppgötvar nýja staði, sefur í tjaldi og étur1 brauð og sparar. Svo kemur Frakkinn og kvartar stöðugt yfir öllu og vill að allt sé franskt. AS lokum kemur Ameríkan- inn og vill kaupa allt fyrir dollarann, sprengir allt verð hvar sem hann kemur og flæmir alla hina burt. Lestu ekki Krókódílinn? Þetta var skrýtla í honum. Góð skrýtla, segi ég. 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.