Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Blaðsíða 19

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Blaðsíða 19
LIÐINN ALDARFJÓRÐUNGUR á svikunum við þjóðina, á lítilmennskunni, á undirlægjuhættinum. Það eru að búa um sig með þjóðinni innri kraftar sem þrá að finna réttan farveg, og munu finna sér hann. Og þessir kraftar þurfa enn að eiga sér, eins og í allri sögu íslands, fram- rás í bókmenntunum. Skáldin og rithöfundarnir þurfa enn á ný að bindast samtökum með alþýðu til þess að finna þjóðinni stefnu og lífsstraumnum far- veg. Og sú stund er komin að þetta er hægt og þessa er krafizt. Það er hægt að glæða þá elda, hlúa að þeim gróðri, skapa það andrúmsloft, vekja og sam- eina þá krafta, sem stuðla vilja að andlegri endurreisn á íslandi. Látum það verða hlutverk Máls og menningar á nýjum aldarfjórðungi að tendra þá and- legu loga. Hví skyldi mönnum þurfa að finnast þetta skyldara draumi en veruleika? Er þjóðin síður hæfileikum búin en áður? Er ekki fyrir nógu að berjast, sjálfri hamingju þjóðarinnar, sjálfri fegurð lífsins? Og hvað sýnir sagan? Þarf alltaf stóran hóp til að vekja þjóðirnar, kveikja eld hugsjónanna og leiða þær fram til sigurs? Menn bölsóta tímunum og sjá allt illt við þá. En hverjir skapa tímana? Geta menn ekki sjálfir vakið þjóðarandann, skapað bókmennt- unum jarðveg til að gróa í? Hvað hefur gerzt í íslenzkri bókmenntasögu ? Hversvegna greru bókmenntirnar nema vegna þess að þjóðin sjálf, alþýðan, hlúði að þeim og ástundaði þær, hvernig sem tímamir voru, hvort sem blés með eða móti. Menn finna þeim skáldum sem nú yrkja flest til foráttu, og því er oft haldið að mönnum, og tekur hver eftir öðrum, að bækur Máls og menningar séu leið- inlegar og hver annarri líkar. Það hefur verið sagt um bækur afmælisútgáf- unnar að þær séu ekki allar ánægjulegar. En hverjar eru ekki ánægjulegar? Það skyldu þó ekki vera þær sem mönnum er mest þörf að lesa og læra af? vegna þess þær eiga mest innihald og vekja menn til skilnings á brennandi vandamálum tímans. Það er mál að þessum áróðri linni, að félagsmenn slái skildi fyrir Mál og menningu og því sé á loft haldið að félagið hefur aldrei slakað á kröfum sínum að gefa út góðar og fjölbreyttar bækur, hefur aldrei brugðizt skyldum sínum við lesendur, aldrei gert gælur við lágmennskuna né hlustað á kvabbið um léttmeti. Þegar ýmsir eru að gera lítið úr nýju bókunum, þá er títt að vitna í gamla daga, vitna í það hvernig verið hafi þegar mestur hafi verið ljóminn yfir Máli og menningu. En þótti mönnum hann í þá daga einatt mikill? Voru kvæði Steins í hávegum höfð þegar þau voru að birtast í Tímaritinu? Varð ekki að berjast fyrir skilningi á Halldóri Kiljan? Og í öðru Iagi: Það er ef til vill ekki 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.