Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Blaðsíða 42

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Blaðsíða 42
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR vöku, svo að segja hinir einu sem trúa því enn, að eitthvað annað sé mannshuganum dýrmætara en bíla- bíngó eða hermannasjónvarp. Og þó hafa þeir hvergi við þeim nákulda veraldarhyggjunnar sem leggur æ fastar að með hverjum mánuði sem líður. Síðan í haust hefur grindahj allur- inn góði, Listamannaskálinn, staðið tómur. Það sem af er þessu ári hefur engin listsýning verið haldin í Boga- sal Þjóðminjasafnsins. Frá Listasafni íslands heyrist ekki hósti né stuna fremur en endranær. Eina hræringin sem bólað hefur á, er sú listkynning sem Safn Alþýðusambands íslands — gjöf Ragnars Jónssonar — hefur gengizt fyrir með sýningum, fyrir- lestrum, kvikmyndum og leiðsögn, bæði hér í bæ og úti um land. En slíkt framtak fjárvana stofnunar dregur að sjálfsögðu næsta skammt. Ástandið í þessum efnum blasir við okkur í dapurlegri nekt sinni og hlýtur að krefjast afdráttarlauss svars við því, hvort við teljum list- irnar þess virði að veita þeim nýtt brautargengi, nýtt vaxtarmagn, eða dæma þær áfram utan laga samfélags- ins. Hér er í rauninni um það spurt, hvort þjóðjélagið eigi að vaxa upp af tœknilegum ávinningum sínum einum saman, eins og holur stofn, eða með þeim merg, sem einn getur leitt af sér blómann. Þótt íslenzka þjóðin hafi oft snúizt rausnarlega við, þegar um listir henn- ar og menningu var að ræða, er langt frá því að hin eldri listamannakyn- slóð hafi verið borin á höndum. En hún var fátæk með fátækum. Það er varla eðlilegt annað en lífskröfur nú- tímans hafi einnig að nokkru leyti læðzt inn í hugi ungra listamanna, — að minnsta kosti hefur vafizt fyrir þeim sanngirni þess, að þeir eigi að taka út refsingu fyrir að hafa ein- hverja hæfileika umfram aðra menn. Því er einnig svo komið, að allir ís- lenzkir myndlistarmenn innan fimmt- ugsaldurs verða að vinna aðra vinnu jafnframt liststarfi sínu, og þarf varla mikinn kunnugleika á starfs- háttum myndlistarmanna til að sjá hvert það stefnir. Góð myndlistarverk verða aldrei til í hjáverkum. Slíkt krefst heils manns, heils hugar, og dugar þó ekki til nema endrum og eins. Nú vilja vafalaust einhverjir svara til þeirri kerlingaspeki, að erf- iðleikarnir, fátækin, séu listinni til góðs. Sannleikurinn er sá, að til eru listamenn sem hafa orðið miklir, ekki vegna fátæktar, heldur þrátt fyrir hana. Erfiðleikar alvarlegrar list- sköpunar eru meira en fangfylli mannlegs þreks. Eða halda menn að Jóhannes Kjarval eða Halldór Kiljan væru nú slíkir sem þeir eru, ef þeir hefðu þurít að hengslast á skrifstofu frá kl. 9 til 5 alla sína starfsævi? Nei, þá er eins gott að við segjum þjóðina 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.