Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Blaðsíða 104

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Blaðsíða 104
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR herra Matthíasar Jóhannessens: Hugleið- ingar og viStöl, þótti mér tvær blaðsíður hennar athyglisverðastar, báðar raunar ó- tölusettar, en munu vera bls. 2 og 3. Á hinni fyrri er skrá yfir bækur herra Matthíasar Jóhannessens, þær er hann hefur fært í let- ur, á hinni síðari eru einkunnarorð hókar- innar. Af bókaskránni verður séð, að hann hefur samið tíu bækur á fimm árum og lekið þátt í þremur. Herra Matthías Jó- hannessen elur sem sagt tvíbura á hverju ári, og jafnvel einu sinni þríbura, ef allt er talið. Þetta þætti ískyggileg viðkoma hjá vanþróuðum þjóðum, en að sjálfsögðu mun bókmenntagagnrýni Morgunblaðsins telja Islendingum þetta mikið og blessað barna- lán. Enda er það mikið afrek af svo ungum manni, ekki sízt þegar þess er gætt, að öll eru þessi rit skrifuð í tómstundum hans, að loknu „tímafreku blaðamannsstarfi", eins og Sigurður A. Magnússon komst að orði um sjálfan sig. Mikið hlýtur þessi ungi maður að fara vel með tíinann. Mikið hlýt- ur honum að liggja á hjarta og mikið hlýt- ur honum að þykja gaman að skrifa. En svo voru það einkunnarorðin á titilblaði bókarinnar. Þau ertt ekki valin af verri end- anum, þau eru tekin úr kvæði Stepháns G. Stephánssonar — Við valnið: Og líjsins kvöð og kjarni er það að líða og kenna til í stormum sinna tíða. Með slíkum orðum gengur vor gladiator fram á sviðið undir gjallandi fagnaðaróp- um íslenzkra lesenda. Það er víst til þess að þakka Stepháni G. Stephánssyni fyrir lánið á einkunnarorðum bókarinnar, að herra Matthías Jóhannessen gerir honum svo hátt undir höfði að meta skáldskap hans. Ifann þakkar Klettafjalla- skáldinu með þessum orðum: „Þó eg hafi talsverða löngun til að fullyrða að Stephan G. hafi ekki verið stórgott skáld, hef ég ekki vald til þess.“ Hvað veldur þessu skyndilega lítillæti Matthíasar Jóhannes- sens, sem talar þó að jafnaði um allt milli himins og jarðar í þessari bók eins og sá sem valdið hefur? Það eru tvö ljón á vegin- um, og annað þeirra, Sigurður Nordal, sem telur Stephán G. stórskáld. Ekki er nú höf- uðburður hólmgöngumannsins meiri, hetju- skapurinn ekki hnarreistari. Þó getur herra Jóhannessen ekki setið á sér, en nartar í skáldið — þrátt fyrir ljónin! Hann kallar Stephán jarðbundinn einsýnismann, gefur í skyn að sjónarhóll hans hafi verið úteyr- arkot „jarðnesks þrönglyndis". Hann þyk- ist taka eftir einhverjum „hælkrók" í stíl og máli Stepháns G. og séu Islendingar mjög ginnkeyptir fyrir slíkum glfmubrögð- um í ljóðum, enda hafi þeir haft lítil kynni af erlendri póesíu, „eins og hún hefur vax- ið upp úr symbolismanum". í lok hugleið- inga sinna um Stephán bregzt herra Jó- hannessen þó aftur hugrekkið og hann reynir að klóra yfir það sem hann hefur áður sagt. Allt er þetta óhugnanlega kar- akterlaust. Það dettur að sjálfsögðu engum manni í hug að fara að deila við herra Malthías Jó- hannessen um skáldskap Stepháns G. En átölulaust mun honum ekki leyfast að læð- ast inn í hofið og næla sér í nokkur blöð úr lárviðarsveig Klettafjallaskáldsins. Þetta hefur herra Matthías Jóhannessen leyft sér með fullkomnu blygðunarleysi. Og fyrir það skal hann hirtur. Þegar Matthías Jóhannessen hafði lokið við að lesa síðustu próförkina af bók sinni leit hann ástríkum augum á hið villulausa opus. Slíkum augum lítur konan á nýalið harn sitt, kýrin á karaðan kálfinn, og slík- um augum leit jafnvel drottinn á sköpunar- verkið þegar hann sá að það var harla gott. Og því var ekki nema eðlilegt að Matthías Jóhannessen kenndi nokkurrar hégómlegr- ar gleði — gleði hins skapandi manns, þeg- ar hann leit yfir hreina próförkina af Hug- leiðingum og viðtölum. Þetta var nú 13. 94
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.