Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Page 48
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
En staðir eru ekki fallegir nema maður geti talað við fólkið.
Það er satt, segi ég.
Hérna upp með fljótinu er mjög fallegt, hjá Tveimur asktrjám, líka við
Tudda og Helgahnjúk, þar sem fljótaguðunum eru færðar fórnir á vorin að
gömlum sið. Það er sérkennandi: Típico, típico, endurtekur hún eins og það
orð hljóti ég að skilja, og mikið af turistas, turistas, ■— og hér færðu annað
orð, segir hún með augunum. Þú kemur bara of seint. Þetta er gamall siður
og brauðið og kertin fljóta burt með straumnum á litlum bátum, þegar kvöld-
ar — Æ — eru þau eins og borgin séð frá hæðum Helgahnjúksins, og sumir
hátar komast hingað með logandi kertið sitt án þess að sökkva — es una mara-
villa, — og þetta hlýtur þú einnig að skilja, en nú verður hún döpur: Svo brast
stíflan og ruddi hálfu þorpinu út í vatnið og vatnsflaumurinn skolaði burt
mönnum og dýrum, en presturinn slapp, vegna þess að hann var í kirkjuturn-
inum. Það var hjá Vatnsbakka.
Ég las um það í blöðunum, segi ég.
ÍÉg hef líklega sagt þetta með mikilli hluttekningu því hún spyr:
Já, ertu prestur?
Nei, segi ég.
En eitthvað skriftlærður?
Upp í mér kemur sonarkærleikur velferðarríkisins því ég segi:
Á mínu landi eru allir skriftlærðir.
Hún horfir vantrúuð á mig og hneigir höfuðið samþykkjandi. Ég veit, að
mér hefur orðið skreipt á skötunni og ruglað saman orðum, en læt við það
sitja og segi fyrir hana í huganum: En hverjir eiga þá að jarða? — Hún segir
ekkert, en ég sé á svipnum, að við erum ekki sömu vinir og áður. Ég skamm-
ast mín fyrir Skandinavann og segi:
Kunna allir að skrifa, á ég við.
Aaa, segir hún ánægð.
Umm-humm, segi ég ánægður.
Og bæði skoðum við herbergið mjög ánægð, og ég fer fram á leyfi til að
fara í bað. Hún fylgir mér inn í baðherbergið. Þar er maður staddur við að
þvo sér.
Þetta er nú sonur minn, segir konan og horfir stolt á son sinn. Hann er að
verða liðsforingi í hernum. Sástu ekki herbúðirnar þegar þú komst?
Komdu sæll, segi ég.
Ánægjulegt að hitta yður, segir hann. Eruð þér útlendingur?
íslendingur, segi ég.
38