Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Side 106

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Side 106
MAL OG MENNING TVTæsta félagsbók Máls og menningar verður Mannkynssaga 1648—1789 eftir Bergstein -L ' Jónsson. Er það mikil bók, eða um 400 bls. Bókin er nú fullsett og verður væntan- lega tilbúin um miðjan maí. Eins og áhugasömum félagsmönnum er kunnugt er þetta 4. bindi Mannkynssögu Máls og menningar; annarsvegar eru þá komin út tvö bindi fornald- arsögu (eftir Ásgeir Hjartarson), en hinsvegar tvö bindi um tímabilið 1648—1848 eftir þá Bergstein og Jón Guðnason. Nú er verið að vinna að tveim næstu bindum, fyrra bindinu um miðaldir og því bindi sem mun fjalla um tímabilið 1500—-1648. Annað þeirra binda mun að líkindum koma út á næsta ári. Mannkynssaga Máls og menningar mun í heild verða að minnsta kosti tíu bindi, og verður langýtarlegasta rit sem gefið hefur verið út um almenna sögu á íslenzku til þessa, en raunar hefur ekkert annað yfirlitsrit um mann- kynssögu verið gefið út hér á landi á þessari öld að undanteknum skólabókum. Félagsmenn eru beðnir velvirðingar á því að þetta tímaritshefti er á ferðinr.i í seinna lagi; en sú er aðalorsök þess að vinnan við Mannkynssöguna varð að ganga fyrir setningu tímaritsins. Næsta hefti mun koma út í maí. Auk Mannkynssögunnar eiga félagsmenn von á fjórðu bókinni í myndlistarflokki Máls og menningar; fjallar sú bók um spænska málarann Goya. Ennfremur er væntanleg þýdd skáldsaga. Verður það saga eftir sænsk-ameríska skáldkonu, Editu Morris, og heitir hún á frummálinu The Flowers of Hiroshima. Edita Morris rak um skeið ásamt manni sínum hjálparstöð í Híroshíma fyrir fórnarlömb atómsprengjunnar og styðst bókin við þau kynni hennar af íbúum Híroshíma. The Flowers of Hiroshima hefur verið þýdd á fjölda tungu- mála um allan heim og notið hvarvetna mikilla vinsælda, enda er bókin einstaklega nær- fæmislega rituð. Utgáfukostnaður jókst mjög á síðasta ári, eða um 30—40%. Stjórn og félagsráð Máls og menningar hafa því séð sig tilneydd að hækka árgjaldið sem því svarar, eða upp í 350 krónur. Þar á móti fá félagsmenn það að félagsútgáfa verður meiri nú en oftast áður. Samanlagt verða félagsbækurnar á árinu ásamt tímaritinu yfir 1000 blaðsíður. Eftir sem áður verður árgjaldið aðeins rúmlega einnar bókar verð. Það eru varla neinar ýkjur að Mál og menning býður hagstæðari kjör en öll önnur bókafélög á íslandi. Félagsmenn eru beðnir að athuga þetta, og stuðla að því að félagið geti enn betur gegnt hlutverki sínu með því að benda vinum og kunningjum á Mál og menningu og hvetja þá til að ganga í félagið. Þeiin sem hafa áhuga á að stuðla að viðgangi Máls og menningar er ennfremur bent á hina nýju bókaskrá sem nú cr verið að senda til allra félagsmanna. I henni eru skráðar allar þær bækur Máls og menningar og Heimskringlu sem nú eru til á lager. Máli og menningu væri kært að fá send nöfn manna utan félagsins sem líklegt væri að hefðu áhuga á að fá bókaskrána senda. 96
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.