Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Síða 35

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Síða 35
ísland hefnr enga forsögu unni sem þeir hafa grafið sig niður í, aðrir sem aldrei virðast geta tyllt tá á fast land. Hvorirtveggj u eru jafnómögulegir. Þegar hugsað er til þess að fornleifarannsóknir eiga sér ekki nema rösklega hundrað ára sögu, er árangurinn undraverður, ef rétt er að þœr veiti sýn yfir mannlíf í Evrópu a. m. k. 25 þúsund ár aftur í tímann. Einhvers staðar hlýtur að vera getið í eyðurnar? Hlutverk fornleifafræðinnar er að reyna að rekja feril mannkynsins á þeim mörgu tugþúsundum ára, sem engar sögur eru til um. Það má nærri geta, að stikla verður á stóru, og margt er það enn, sem vanskilið er. En það er ötul- lega unnið í öllum löndum heims og fyllt er upp í eyðurnar smátt og smátt. Það er ekki áhlaupaverk að skapa heild, samhangandi menningarsögu úr þeim einhæfu brotabrotum, sem varðveitzt hafa. En húsið er þó að verða fokhelt, svo verður það tilbúið undir tréverk og einhvern tíma verður hægt að mála og dúkleggja. Ég þarf varla að taka fram, að ég er hér að tala um forn- leifafræði almennt, ekki íslenzka fornleifafræði. Nokkrir hafa leitt hugann að forsögu Islands. Eg minnist skrifa Einars Benediktssonar. Hann kynnti sér hella á Suðurlandi og sagðist geta sannað með rökum að margir þeirra vœru eldri en hin norrœna landssaga. Hefur sú fullyrðing verið hrakin? Það er einkennilegt og eiginlega sálfræðilegt rannsóknarefni, hvernig þessi hellarómantík Brynjúlfs frá Minnanúpi (blessuð sé og verði hans minn- ing hér í Þjóðminjasafni) og Einars Benediktssonar hefur runnið inn í íslend- inga. Menn halda dauðahaldi í þessar getgátur og hafa þær fyrir helgar kýr. Einar taldi sig hafa fundið í einum hellinum, í Hellnatúni í Asahreppi, róm- verskt letur frá 4. öld. Hefur það verið tekið til frekari athugunar? Já, vissulega. Matthías Þórðarson rannsakaði fjölmarga manngerða hella í Arnessýslu og Rangárvallasýslu og skrifaði um þá framúrskarandi skýra greinargerð í Árbók fornleifafélagsins 1930—31. Það sem Einar Benedikts- son sá í Hellnatúnshelli og las S J G IV og þýddi Saeculo Jesu Generationis Quarto, er í rauninni fangamark S J S, Sigurðar Jónssonar eða þvíumlíkt, vafalítið frá 17. eða 18. öld. Þeir sem eru miður sín af illkynjaðri hellatrú ættu að lesa þessa heilsusamlegu grein Matthíasar, þar sem hann segir meðal annars: „Það er eðlilegra að hugsa, að þeir (hellarnir) muni gerðir af þeim mönnum, sem vér vitum að voru hér, en af mönnum sem vér vitum ekki til að 23 TMM 353
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.