Tímarit Máls og menningar - 01.06.1972, Blaðsíða 153
Til félagsmanna Máis og menningar
Mjög hægt hefur gengið að koma þessu tímaritshefti út, þó að það væri raunar tilbúið
frá hendi ritstjórnarinnar fyrir fjórum mánuðum. Þetta hefti telst 1.-2. hefti árgangsins,
og næsta hefti verður einnig tvöfalt. Efni í það er nú tilbúið og byrjað að setja; verður
leitazt við að koma því út fljótlega eftir áramót, og mættu þá vera vonir til að ritstjóm-
inni takist að efna það loforð sitt að koma reglu á útgáfu Tímaritsins á árinu 1973.
Nokkur hreyting varð á útgáfu félagsbóka miðað við það sem boðað var í síðasta
hefti Tímaritsins. Helzta breytingin varð sú að ein pappírskilja heltist úr lestinni, Nauð-
syn listar; urðu pappírskiljurnar ekki nema tvær, en í staðinn var tekið til félagsútgáfu
dálítið bréfasafn eftir Magnús Stefánsson (Örn Arnarson) sem Hallur Hallsson yngri,
tannlæknir, hafði af mikilli vinsemd látið Máli og menningu í té, en hann hafði fengið
í arf frá föður sínum. Er það raunar dýrindisbók, þó ekki sé stór, og fyllir mjög upp í þá
mynd sein lesendur ljóða Amar Amarsonar liafa gert sér af skáldinu. Af öðrum út-
gáfubókum þykir ástæða til að benda félagsmönnum sérstaklega á Frönsku byltinguna
eftir Albert Mathiez, sem hlýtur að vera mikill fengur öllum þeim mörgu sem áhuga
hafa á sögu; það var að vísu korninn tími til að Mál og menning fyllti þama upp í
eina tilfinnanlega glompu í íslenzkum bókakosti. Síðara bindi byltingarsögunnar er
þegar komið í setningu og verður að öllu forfallalausu tilbúið í marz.
Af öðmm bókum, sem eru væntanlegar snemma á árinu, má telja endurútgáfu á
fornaldarsögu Asgeirs Hjartarsonar, sem félagsmönnum gefst kostur á að taka sem
félagsbók, annaðhvort þessa árs eða ársins 1973. Þá eru tvö næstu bindin af ljóðasafni
Jóhannesar úr Kötlum, og verða í þeim bækurnar Hrímhvíta móðir, Hart er í heimi;
Mannssonurinn og Eilífðar smáblóm. Þessar bækur, Mannkynssagan og Ljóðasafnið, eru
þegar settar. Handritum að tveimur pappírskiljum er lofað í janúar, og mundu þær þá
fljótlega verða teknar til útgáfu. Fleira mætti telja, þó ekki sé ástæða til að sinni, en
þess má geta, að þegar em komnar á skrá yfir mögulegar útgáfubækur fyrir árið 1973
25 bækur; en þar með er ekki sagt, að líklcgt sé að slíkur fjöldi bóka verði gefinn út
á árinu.
143