Tímarit Máls og menningar - 01.06.1972, Page 110
Tímarit Máls og menningar
né gagnlegar. Viff viljum efnismeiri umræður - við tökum undir með Frederic
Douglas, mikilmenni í röðum svertingja, sem skildi gildi mótmæla í sögunni.
Hann sagði:
„Þeir sem lýsa yfir fylgi við frelsið án þess að vilja áróður, eru menn
sem vilja uppskera án þess að erja jörðina. Þeir vilja regn en ekki þrumur
og eldingar. Þeir vilja hafið en ekki ógnandi öldur þess. Vald lætur ekkert
af hendi án þvingunar. Það hefur aldrei gert það og mun aldrei gera. Fólk
verður að þola nákvæmlega jafn miklar þjáningar og órétti og það getur
tekið við með þögninni, og óréttið og þjáningarnar halda áfram, unz and-
staðan vaknar í orði og verki. Þolinmæði hinna kúguðu setur harðstjóran-
um takmörk.“
Þessi maður var þræll.
Black Power þýðir að svertingjar líta á sig sem aðila að nýrri valdastærð
sem oft er nefnd þriðji heimurinn, að barátta þeirra er tengd traustum bönd-
um frelsisbaráttu um allan heim. Slík tengsl verður að treysta enn betur.
Við verðum t. d. að spyrja okkur: Hver verða viðbrögð Bandaríkjanna ef
svertingjar ráðast inní Jóhannesarborg? Hvað gerir vestrið og hvert verður
hlutskipti svertingja í Bandaríkjunum? Það sýnist óhjákvæmilegt að Banda-
ríkin muni reyna að vernda eigin fjármálahagsmuni í Suðurameríku og þá
um leið vernda hvíta yfirdrottnun þar, eins og England liefur gert. Þá hvílir
sú skylda á svertingjum í Bandaríkjunum að beita sér gegn slíku, að minnsta
kosti draga úr og reyna að gera slíkar aðgerðir af hendi hvítrar Ameríku
óvirkar. Þetta er aðeins dæmi hliðstætt mörgum sem þegar hafa risið í heim-
inum - og fleiri munu á eftir koma.
I þessari baráttu eiga svartir Ameríkanar um ekkert að velja, þeir verða
að standa með þriðja heiminum.
Ég ætla að draga tvær ályktanir og ég ætla að lesa tilvitnun í „Útskúfaðir
á jörðinni“ efdr Frantz Fanon, þar sem hann skýrir þetta nánar og tengslin
milli þess sem kallast Black Power og þriðji heimurinn:
„Við skulum ákveða að líkja ekki eftir Evrópu. Við skulum reyna að
skapa þann heilsleypta mann sem Evrópu tókst ekki að gefa líf. Fyrir tvö
hundruð árum ákvað fyrrverandi evrópsk nýlenda að draga Evrópu uppi.
Þeta tókst með slíkum ágætum að Bandaríki Norðurameríku eru nú orðin
ferlíki þar sem spilling Evrópu, ómenning og illmennska hefur vaxið í feikna
fyrirferð.
Þriðji heimurinn stendur nú frammi fyrir Evrópu eins og risi sem hlýtur
að hafa sem markmið, að leysa vandamál er Evrópu tókst ekki að finna svör
100