Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Blaðsíða 36
Tímarit Máls og menningar
Sagan er um þetta skyld verkum eins og Á botni breðans eftir Gunnar
Gunnarsson, útópískri sögu. Hún fjallar um konu, sem lokast inni í koti
sínu vegna fannfergis, en tekst á 18 sólarhringum að reisa „himnastiga" upp
úr bæjardyrunum og komast upp á yfirborðið. Þessi kona hnígur til jarðar
og um leið sjálfrar sín, tekst á við eyðingaröfl í heimi og sál, berst við
dauðann og virðist búinn staður. Uppstigning hennar felur því í sér sigur og
endurnýjaða eining, lífgjöf, sem í senn er kosmísk og einstaklingsbundin því
að hún rennur saman við upphaf nýs árs.
Sunnudagskvöld felur ekki í sér heilsteypta goðsögulega heimsmynd eins
og saga Gunnars. Sögukonan er ekki lausnarhetja, sem leysir úr viðjum og
gefur nýtt líf. Oðru nær. Hið kosmíska snið hefur aðeins sálræna þýðingu í
sögunni, tilvistarlega. Það er samlíking í skáldmálinu og tengir sneiðarnar
saman í eina heild. Sagan er ekki heldur táknmynd af átökum vellíðunarlög-
máls og veruleikalögmáls. Enn síður er hún lífsjátning. Mýþísk, freudísk og
ævisöguleg líkön eru einungis vísbendingar, sem textinn býr yfir. Skáldleg
merking hans skapast fyrst og fremst af innra rími, lóðréttum og láréttum
venslum, kerfi líkinda og mismunar, samræmi í efni og formskipan. Þessi
snið gefa sögunni sérstaka hrynjandi sem er hennar og minnir á ljóð; form-
gerð, skáldskapur.
Tilvísanir
1) Sjá t. d. Kristján Karlsson. „Formálsorð“. Smásögur ungra rithöfunda 1940 —
1955. Reykjavík 1955. Sami. [Formálar]. íslenskar smásögur 1847—1974, I—III.
Reykjavík [1982 — 1983]; Olafur Jónsson. Ritdómur. Skímir. Tímarit Hins íslenska
bókmenntafélags. Reykjavík 1983. Sveinn Skorri Höskuldsson. „Den islándska
kortprosas uppblomstring under 50-talet.“ Kortprosa i Norden. Fra H.C. Andersens
eventyr til den moderne novelle. Odense 1983. Knútur Hafsteinsson. Nýjungar í ís-
lenskri smásagnagerð um 1950. Opr. BA ritgerð á Háskólabókasafni (1980).
2) Matthías Viðar Sæmundsson. „Það er seigt í þessu kvikindi — Þorsteinn frá
FIamri“. Stríð og söngur. [Reykjavík, 1985]. Bls. 186—187.
3) Franc O’Connor. The Lonely Voice. A Study of the Short Story. Cleveland and
New York [1963]. Bls. 13-45.
4) Ásta Sigurðardóttir. Sögur og Ijóð. Reykjavík 1985.
5) Herbert Marcuse. Eros and Civilization, 1955.
6) Guðmundur A. Thorsson. „Rautt og svart“. Þjóðviljinn, 4. desember 1985; sjá
einnig G(uðrún) B(jartmarsdóttir). „Upp gengur fangakaball aldrei eða seint“.
Helgarpósturinn 28. nóv. 1985.
7) Þórir Bergsson. „Sigga-Gunna“. Ritsafn. Fyrsta bindi. R. 1965.
8) Sjá Matthías Viðar Sæmundsson. „Líf úr djúpi. Á botni breðans og heimsmynd
Gunnars Gunnarssonar". Lesbók Morgunblaðsins. 8. tbl. 2. marz 1985.
162