Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Blaðsíða 103

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Blaðsíða 103
Jarðarför að hausti og síðan á kistuna. Stúlkan var ennþá með diskóið á sér en nú héngu heddfónarnir um háls hennar einsog skraut. Við heyrðum óm af tón- list. Já, sagði ég eins og spurning hennar hefði verið í hæsta máta eðli- leg. Sem hún og var miðað við aðstæður. Þegar við höfðum komið kistunni uppá veginn rauk líkbílstjórinn uppí bílinn minn og hvarf fljótlega á leið í bæinn. Við stóðum þarna fimm yfir hvítri kistunni sem innihélt draslið af afa mínum, fjórir sparibúnir frændur með hálstau og stúlka í hlaupagalla og með vasa- diskó. Ekkert okkar kunni að haga sér undir kringumstæðunum. Djöfull hafiði klúðrað þessu svakalega, sagði stúlkan. Það var nokkuð til í því — óneitanlega svakalegt að glopra heilli jarðarför útúr höndunum á sér. Hver var? bætti stúlkan við og kinkaði kolli í átt til kistunnar. Dágóða stund beið hver okkar eftir að annar svaraði og það endaði með því að ég sagði: Afi. Og svo þögðum við áfram, það voru hvítir snjókollar á höfðum okkar. Eg veit ekki eftir hverju við vorum að bíða, né heldur hefur mér orðið ljóst hvað við hugsuðum, hvers við væntum. Kannski fengum við einhverja fáránlega grillu um að líkbílstjórinn hefði farið í bæinn tilað redda málunum. Þó hefði staðið okkur nær að halda að hann hefði einungis verið að forða sér — jafnvel af landi brott, yfir- kominn af blygðun. Líkbíllinn í klessu og jarðarförin ónýt. Stúlkan með vasadiskóið sagði: Heyriði mig, hvað gerir maður eftir að hafa misst lík útí læk? Enginn okkar hafði svar við því. Enginn okkar kunni á jarðarfarir — við vorum viðvaningar og nú hafði áætlunin raskast. Eg veit það ekki, sagði ég. Þegar ný þögn virtist í uppsiglingu, sagði stúlkan: Ekki ætliði að hanga hér? Við þóttumst vita að það væri ekki hægt. Og eftir að hafa þingað um málið ákváðum við að bera kistuna til kirkjunnar. Eg giskaði á það væri fimm mínútna gangur — með tilliti til burðar á líkkistu. Og við gengum af stað. Alveg óvart héldum við frændurnir takti einsog fótgöngulið og stúlkan kom á eftir og við gengum nógu hægt tilað hún gat líka dansað við lagið úr diskóinu. Gatan var hál og ég óttaðist að við myndum detta og kom í hug sagan af Mjallhvíti og 229
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.